Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Page 30
30 MATUR Vanillubollakökur 250 g hveiti 300 g sykur 3 tsk. lyftiduft 1½ tsk. vanilludropar ½ tsk. salt 4 stk. egg 100 g smjör, mjúkt 2½ dl mjólk Hitið ofninn í 180 gráður. Blandið saman hveiti, sykri, salti, lyftidufti, smjöri, mjólk og vanilludropum, þeytið í hrærivél í nokkrar mínút- ur. Bætið eggjunum út í og þeytið saman við. Setjið í pappaform og bakið í um 17-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna áður en kremið er sett á þær. Hindberjakrem með rjómaosti 200 g rjómaostur 200 g hindber fersk 60 g flórsykur ½ tsk. vanilludropar Þeytið saman rjómaost, flórsykur og vanilludropa. Takið fersk hindber, stappið þau og þeytið saman við rjómaosta- blönduna. Setjið kremið á kökurnar og kælið aðeins áður en þær eru bornar fram. Verði ykkur að góðu. Una í eldhúsinu Hvítlaukskjúklingur með spínati og beikoni Einfaldur og góður kjúklingaréttur sem er fljótlegur í undirbúningi. Fyrir 4-5 manns 6 stk. kjúklingabringur 1 stk. hvítlaukur 20-25 stk. ólífur 4-5 stk. beikonsneiðar 5-6 stk. sólþurrkaðir tómatar (má vera meira ef fólk vill) Handfylli af spínati ½ dl rjómi Rifinn ostur að vild 1 tsk. smjör Byrjað er á að skera mjög smátt niður ólífur, hvítlauk, beikonsneið- ar og sólþurrkaða tómata. Steikið ásamt spínatinu á pönnu. Gott er að setja ca. 1 tsk. smjör saman við. Kjúklingabringurnar kryddaðar með salti og pipar, steiktar á pönnu 2-3 mínútur á hvorri hlið til að loka þeim. Setjið bringurnar í eldfast mót og inn í ofn í 25 mínútur á um 180 gráður, undir- og yfirhita. Takið kjúklinginn úr ofninum og hellið hráefnunum (ólífu- og spínat- blöndunni) sem búið var að steikja á pönnu yfir bringurnar ásamt því að hella rjóma yfir þær. Stráið svo rifnum osti yfir. Setjið aftur í ofninn og eldið í um 15-20 mínútur í viðbót eða þar til kjúklingabringurnar eru tilbúnar. Á meðan kjúklingabringurnar eld- ast er tilvalið að sjóða hrísgrjón eða setja hvítlauksbrauð í ofninn. Gott salat klikkar einnig seint. Nú er tími til að eiga samverustundir við eldhús- borðið og ekki er verra ef væn sletta af rjóma og lúka af beikoni koma þar við sögu. Mjúk lending eftir páskaátið er svo toppuð með bollakökum. 17. APRÍL 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.