Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Side 36
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er jákvæður að eðlisfari en það hefur reynt á Pollýönnu-taktana upp á síð-
kastið. Lúna Fírenza, spákona og tarotmeistari
DV, lagði spilin á borðið fyrir forsetann.
Guðni er Krabbi og það jákvæða við Krabba er að þeir
eru mjög tryggir, gáfaðir og með mikla réttlætis- og
samkennd. Krabbinn hefur ríka félagsgreind sem er
klárlega mikill kostur fyrir forseta. Krabbinn á það
líka til að vera tilfinningavera og líður yfirleitt best
þegar öðrum líður vel. Hann vill alls ekki bregðast
fólki þannig að þessir tímar reyna verulega á.
Átta í sverðum
Lykilorð: Ótti, kvíði, varnarleysi
Þetta spil er lýsandi fyrir þá tilfinningu sem flest okkar
hafa upplifað á þessum tímamótum. Eins jákvæður
og þú átt það til að vera þá hefur þú fundið fyrir bæði
kvíða og ótta undanfarið. Þú nýtur þín ekki þegar þú
finnur fyrir óöryggi hjá öðrum. Þú vilt geta sagt fólkinu
þínu að það sé allt á uppleið og bjart fram undan. Að
allt verði í lagi. Þér finnst eins og völdin hafi vera tekin
af þér. En það er ekkert að óttast, því þetta er bara
staðfesting á tilfinningu sem hefur komið upp hjá þér,
ekki það sem komið er til að vera. Mundu bara að það
er allt í lagi að segja: Hei, mér líður ekki sérlega vel í
dag. Jafnvel þótt maður sé forseti!
10 stafir
Lykilorð: Erfiðisvinna, ábyrgð, byrði
Tíu stafir eru til vitnis um að það er aukin ábyrgð á
herðum þér, þyngri byrði en venjulega í starfi þínu. Þó
að þú finnir fyrir þessum þyngslum þá hefur þú fullan
skilning á því að þetta er tímabundið. Þú finnur fyrir
nýjum krafti í þessari viku til að takast á við þetta
krefjandi verkefni sem er fram undan. Spilin lofa þér að
þú verður verðlaunaður fyrir erfiðisvinnuna og innsæi
þitt veit það líka og þess vegna finnur þú fyrir nýjum
krafti. Þú veist að þessi átök munu skilja eftir sig eitt-
hvað einstakt og fallegt.
Myntgosi
Lykilorð: Nýir tímar, öryggi, stöðugleiki, gnægð
Jæja, nú kemur allt heim og saman með þessu fallega
og góða spili. Þú uppskerð eins og þú sáir, ert sannur
leiðtogi og munt með þínu teymi koma þjóðfélaginu
á bjartari braut mun fyrr en útlit var fyrir. Saman
stöndum við sterk. Það er nýr kraftur sem fyllir sam-
félagið af stöðugleika og fjármál verða jafnvel betri en
þau voru áður. Fólkið í samfélaginu mun styðja hvert
annað og lítil fyrirtæki fá að blómstra á ný. Þetta fyllir
Krabbahjartað mikilli hugarró.
Skilaboð frá
spákonunni
Ef það er einhvern tímann rétti tíminn til að draga
fram skræpóttu sokkana, þá er það núna. Það eru
litlu hlutirnir sem skipta máli og bara það eitt að
bæta aðeins í lita dýrðina í kringum sig, hvort sem
það er í formi sokka eða jafnvel blóma, skiptir máli
og því mæli ég með að þú bætir við litum í líf þitt.
STJÖRNU SPÁLESIÐ Í TAROT Forseti Íslands
Svona eiga þau saman
Hrútur
21.03. – 19.04.
Þú nennir ekki þessu hangsi
lengur og í staðinn fyrir að detta í
sjálfsvorkunn þá er núna tíminn til
að hugsa í lausnum! Ekki bugast
því það er eitthvað magnað
handan við hornið og þú finnur að
eitthvað kraumar innra með þér.
Naut
20.04. – 20.05.
Þú varst svoleiðis búin/n að sjá
fyrir þér ákveðið frí, sem er ekki
að fara eins og planað var! Þótt
það taki aðeins fleiri kokteila eða
kaffibolla þá er það að tjalda inni
eða að henda sér í sjósund ekki
svo vitlaus hugmynd. Stjörnurnar
hvetja þig til að gefa þér lausan
tauminn og leyfa þér að vera smá
skrítin/n!
Tvíburar
21.05. – 21.06.
Þú finnur fyrir smá viðkvæmni
þessa dagana ekki vera smeyk/ur
við þá tilfinningu. Taktu upp tólið
og segðu systkinum þínum hvað
þú kannt að meta þau. Hringdu í
þennan vin sem þreif einu sinni
upp eftir þig ælu og sýndu þakk-
lætið. Skrifaðu ástarbréf til maka
þíns, það eru engin takmörk!
Þessi ást og umhyggja mun
blessa þig margfalt til baka.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Þessa vikuna þarftu að nota
sannfæringarkraft þinn. Þú þarft
að fá einhvern í lið með þér til
þess að planið gangi upp. Pass-
aðu bara tóninn, elsku Krabbi, þú
átt það til að hljóma of grimmur
sem skilar öfugum árangri. Og ef
það tengist unglingum, þá er gott
ráð að lofa þeim að halda að það
hafi verið þeirra hugmynd.
Ljón
23.07. – 22.08.
Þér líður eins og þú eigir að vera
að gera eitthvað merkilegt og
mikilvægt en þig langar bara að
leika þér. Stjörnurnar hvetja þig
áfram í leiknum, þannig nærðu
þessu út úr kerfinu og kemur
jafnvægi á það sem er mikilvægt
að sinna og það sem er bara
skemmtilegt að gera! Það getur
alveg verið tilgangur í því að
föndra eitthvað fallegt!
Meyja
23.08. – 22.09.
Nú er tími til að krydda rómantík-
ina. Ef það eru ekki börnin, þá er
það jafnvel bara hugurinn sem er
að gera þig vitlausa/n sem skilur
ekki mikla orku eftir. Dragðu fram
tantrabókina sem þú pantaðir á
eBay og lestu hana.
Vog
23.09. – 22.10.
Jæja, nú er boltinn farinn að rúlla
og þú getur andað á ný. Þú sérð
heiminn í gegnum rósrauð gler-
augu eins og þér er einni/einum
lagið. Þessi vika fer í að festa
rætur fyrir komandi tíma, tengjast
nýjum böndum. Samstarfsverk-
efni er í fæðingu!
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Hmm. Þú ert ekki alveg sammála
einhverjum í vinnunni. Þetta gæti
verið tíminn til að vera sammála
um að vera ósammála. Stress
getur verið ósjarmerandi og þessi
vinnufélagi er kannski ekki upp á
sitt besta. Prófaðu að sjá hlutina
frá öðru sjónarhorni og veldu
þínar orustur vel.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Það er flippkisi hlaupinn í þig og
þú finnur löngun til að kaupa eitt-
hvað fáránlegt á veraldarvefnum
eða jafnvel bjóða í lítið partí sem
þú veist að má ekki! Þú verður
að hemja þessar tilfinningar og
gætir nýtt tímann frekar í að
plana þessa veislu á meðan það
er samkomubann.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Spennandi tímar í kortunum. Þú
þarf að taka einhverja mikilvæga
ákvörðun og átt mjööööög erfitt
með það, þetta gæti verið stór
breyting fyrir þig. Ef það er ein-
hvern tíma tími til að hringja í vin
þá er það núna. Hugsaðu upphátt
og svarið mun koma til þín.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Líkt og Steingeitin þá stendur þú
líka á krossgötum og þarf að taka
ákvörðun. Þú reyndar veist þegar
hvert svarið er en átt í erfiðleikum
með að treysta innsæinu. Það
getur verið auðvelt að misskilja
hnút í maga sem kvíða þegar
það er einfaldlega bara spenna.
Breytingar eru spennandi!
Fiskur
19.02. – 20.03.
Þú veist ekki hvort það er bara því
að þér leiðist en allt í einu langar
þig að breyta öllu heima hjá þér
og fá nýtt „lúkk”. Það getur verið
mjög gefandi bara ekki vera ein/n
af þeim sem klippa skakkan topp
og sérð eftir því áður en þú hefur
lagt frá þér skærin!
Vikan 17.04. – 23.04.
Nú er tíminn fyrir skræpóttu sokkana
Tæplega hálfs metra munur
MYND/EYÞÓR
stjörnurnarSPÁÐ Í
Hafþór Júlíus Björnsson, einnig þekkt-ur sem Fjallið, og eiginkona hans Kel-sey Henson greindu frá því í vikunni
að þau ættu von á dreng í október. DV lék
forvitni á að vita hvernig þau eiga saman ef
horft er í stjörnumerkin.
Hafþór Júlíus er Bogmaður en Kelsey er
Fiskur. Þessi merki eru algjörar andstæður
en ef þau gefa sér tíma til að sinna samband-
inu getur það blómstrað á heilbrigðan hátt.
Bogmaður er hugsuður, heimspekingur og
fer auðveldlega úr einu í annað. Fiskurinn
horfir meira inn á við og er í sífelldri sjálfs-
skoðun. Bæði Fiskurinn og Bogmaðurinn
hafa mikla aðlögunarhæfni og eiga auðvelt
með að gefa hvor öðrum rými til að vera og
njóta.
Einn styrkleiki þeirra er að þau eru bæði
mjög jákvæð og bjartsýn á framtíðina. Þau
eru líka bæði frekar slök.
Hvorugt þeirra tekur sig of alvarlega. Það
er stutt í hláturinn og þeim finnst gaman að
verja tíma saman. Meðal veikleika parsins er
skortur á trausti og það getur tekið tíma að
byggja upp traustið í sambandinu.
Hafþór Júlíus Björnsson
26. nóvember 1988
Bogmaður
n Örlátur
n Hugmyndaríkur
n Húmoristi
n Heiðvirður
n Lofar upp í
ermina á sér
n Óþolinmóður
Kelsey Henson
5. mars 1990
Fiskur
n Píslarvottur
n Gáfuð
n Blíð
n Listræn
n Samúðarfull
n Langar stundum að
flýja raunveruleikann
36 STJÖRNUFRÉTTIR 17. APRÍL 2020 DV