Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 37
DV 17. APRÍL 2020 FRÆGIR ÍSLENDINGAR Á LAUSU Amor er ekki í sóttkví þó að ein- hleypir Íslendingar geti ekki leyft sér að stunda skemmtistaði. Þ að hreinlega rýkur úr Tinder þessa dagana en fyrirtækið býður notendum appsins upp á fría uppfærslu í svokallað Pass­ port, eða vegabréf, í viku til að stytta sér stundir. Það þýðir að notendur geta hlaðið upp stefnumótum eftir mun víðari staðsetningu en áður. Þetta góða og eftirsótta fólk hérna á listanum er allt statt á Íslandi en skyldi það vera á Tinder? Jafet Máni Magnúsarson Ungstirnið Jafet Máni er 22 ára upprennandi sjónvarps- stjarna. Jafet hóf feril sinn í Þjóðleikhúsinu þar sem hann lék í Kardimommubænum og er í dag með þættina Framm á við á RÚV núll þar sem hann ræðir við unga frumkvöðla og viðskiptafólk. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Áslaug Arna dómsmálaráðherra er ein eftir- sóknarverðasta einhleypa kona Íslands í dag. Hún þykir mikil stemmingsmanneskja og hörkudugleg. Friðrik Ómar Hjörleifsson Söngvarinn sísæti er ástríðukokkur með góðan húmor. Friðrik er ættaður að norðan, með stórt hjarta og í toppformi. Ritstjórar Stundarinnar Jón Trausti Reynisson og Ingibjörg Dögg Kjart- ansdóttir, ritstjórar Stundarinnar, eru bæði ein- hleyp. Vel skrifandi og sjarmerandi bæði tvö. Björg Magnúsdóttir Rithöfundurinn, sjónvarpskonan og gleði- sprengjan Björg er sannkallað kosta búnt. Landsmenn þekkja hana úr þættinum Kapps- mál þar sem hún kippir reglulega í munnvik áhorfenda með hnyttnum svörum og smitandi hlátri. Björg er einnig einn af höfundum sjón- varpsþáttarins Ráðherrann sem margir sjón- varpsunnendur bíða eftir með óþreyju. Bryndís Líf Fyrirsætan og áhrifavaldur inn Bryndís Líf, 23 ára, greindi frá því í mars síðastliðnum að hún væri komin aftur út á markaðinn. Bryndís leggur stund á sálfræði og er þekkt fyrir að birta af sér djarfar myndir. Hún er með 27 þúsund fylgjendur á Insta gram svo að það þýðir ekkert fyrir hana að krækja sér í feiminn kærasta. Sara Sigmundsdóttir Íþróttakonan Sara Sig- mundsdóttir er fyrirferðar- mikil í CrossFit-heiminum og með 1,7 milljónir fylgjenda á Insta gram. Sara er ein- staklega metnaðargjörn og jákvæð. Guðrún Sóley Gestsdóttir Fjölmiðlakonan Guðrún Sóley Gestsdóttir starfar á RÚV. Hún gaf á síðasta ári út mat- reiðslubók og þykir fantagóður kokkur. Guðrún státar af bjartasta brosi landsins og stundar ræktina af kappi. HÆTT SAMAN Áhrifavaldaparið Brynjólfur Löve Mogensson og Kristín Péturs- dóttir eru hætt saman samkvæmt öruggum heimildum DV. Þau voru eit t vinsælasta par Íslands og mjög dugleg að deila myndum og myndskeiðum af hvort öðru á samfélagsmiðlum. Brynj- ólfur starfar sem markaðsstjóri Kiwi og Kristín er leikkona. Halldór Armand Halldór er rithöfundur sem slegið hefur í gegn með bókum á borð við Drón og Aftur og aftur en næsta bók hans kemur út í haust. Hann er hugsuður mikill, gullfal- legur og hugmyndaríkur. Halldór er einnig með fasta pistla á Rás 1. Tommi Lemarquis Leikarinn franskættaði Tómas Lemarquis hefur slegið í gegn í erlendum kvikmyndum á borð við Blade Runner 2049 og X- Men: Apocalypse. STJÖRNUFRÉTTIR 37

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.