Dagblaðið Vísir - DV - 17.04.2020, Qupperneq 38
G unnlaugur Jónsson er hvað þekktastur hér á landi fyrir afrek
sín sem knattspyrnumaður.
Harðjaxlinn frá Akranesi
gerði það gott hér á landi í
atvinnumennsku og með ís-
lenska landsliðinu. Síðustu
ár hefur hann starfað í heimi
fótboltans en einnig í fjölmiðl-
um. Útvarpsþættir hans um
íslenska tónlist á RÚV hafa
notið vinsælda en undanfarin
misseri hefur hann framleitt
sjónvarpsþætti fyrir Sjón-
varp Símans undir nafninu
Áskorun.
Í þáttunum er rætt við af-
reksfólk í íþróttum sem hefur
með einstöku hugarfari og
þrautseigju sigrast á ólíkum
áskorunum í gegnum lífið,
innan vallar og utan. Fólk
heima í stofu fær að sjá hliðar,
sem fáir ef nokkrir þekkja, að
baki sögum sem flestir hafa
heyrt; kynnast manneskjunni
undir búningnum. Rætt er við
samstarfsfólk, fjölskyldu og
vini og kafað undir yfirborðið
í sögu hvers og eins.
„Þetta á sér langan aðdrag-
anda. Ég fékk hugmyndina í
byrjun árs 2018 en þá var ég
atvinnulaus. RÚV var með
Heimsmeistaramótið þetta
árið og hafði ekki pláss fyrir
meira efni. Stöð 2 tók mér svo
ekkert sérstaklega vel, ég
fékk ekki fundinn sem mér
var lofað. Það æsti upp í mér
að láta til skarar skríða. Ég
fékk fund með Sagafilm sem
tók vel í hugmyndina.
Það tekur allt lengri tíma
í sjónvarpi en útvarpi svo
það fór hálft ár í að fá sjón-
varpsstöð að borðinu til að
hefja framleiðslu. Upptökur
hófust í upphafi árs 2019 og
hefur þetta því verið langt
ferli,“ segir Gunnlaugur sem
uppsker nú ríkulega þar sem
þættirnir eru komnir í efnis-
veitu Símans.
Flúði land eftir að hafa
komið út úr skápnum
Þættirnir í þessari syrpu eru
fimm en saga Inga Þórs Jóns-
sonar er saga sem fáir þekkja.
„Hann fer á Ólympíuleikana
1984 og keppir í sundi. Hann
er ekki kominn út úr skápnum
þá. Eftir leikana kemur hann
út úr skápnum sem hommi en
fer í raun inn í skápinn sem
íþróttamaður. Hann skamm-
aðist sín fyrir að vera íþrótta-
maður og hætti eftir leikana
og flutti af landi í brott. Gerð-
ist flugþjónn og það tók hann
tuttugu ár að koma til baka
sem íþróttamaður,“ segir
Gunnlaugur um sögu Inga.
Aðrir viðmælendur eru Elísa-
bet Gunnarsdóttir, Tryggvi
Snær Hlinason, Guðmundur
Þ. Guðmundsson og Evrópu-
meistaralið Gerplu.
Á góðum stað eftir að hafa
sagt upp á síðasta ári
Gunnlaugur var þjálfari
Þróttar í knattspyrnu en
sagði starfi sínu lausu fyrir
rúmu ári, hann hafði of margt
á sinni könnu. Gunnlaugur
var greindur með geðhvarfa-
sýki 18 ára gamall. Sjúkdóm-
urinn fór að gera vart við sig
á meðan hann var í starfi hjá
Þrótti.
„Það náðist að finna jafn-
vægi með tímanum. Það hefur
sýnt sig að þetta var hárrétt
ákvörðun. Þetta var of mikið,
að vera í vinnslu á þessum
þáttum og að þjálfa fótboltalið.
Ég hef náð stöðugleika, sem
maður hefur leitað eftir. Það
er gott stand á mér í dag, við
stefnum á að halda því áfram.“
Ásamt því að starfa í fjöl-
miðlum er Gunnlaugur
íþrótta- og verkefnastjóri
Gróttu en langar þennan
kraftmikla Skagamann að
fara aftur í þjálfaraúlpuna?
„Mig klæjar ekkert í putt-
ana, það hefur verið falast
eftir því að ég hjálpi til í yngri
flokkum. Það yrði á mínum
forsendum, í augnablikinu er
hún ekki hávær þessi ástríða
fyrir þjálfun. Hún blundar
þarna undir niðri og maður
útilokar ekkert.“ n
Skagamaðurinn geðþekki hefur í tvö ár unnið að framleiðslu á sjónvarpsþáttum um afreksfólk.
EINSTAKAR SÖGUR
LÍTA DAGSINS LJÓS
Skagamaðurinn Gunnlaugur Jónsson segir áhrifa-
miklar sögu afreksfólks í nýjum sjónvarpsþætti.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
Ný spennubók eftir Óttar Norðfjörð,
aðalhandritshöfund Brots
Falleg endurútgáfa fyrir aðdáendur
Dalalífs og Guðrúnar frá Lundi
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
TÍMI FYRIR
LESTUR
38 SPORT 433 17. APRÍL 2020 DV