Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.05.1944, Page 25

Íþróttablaðið - 01.05.1944, Page 25
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ 17 Þrisundssveil drengja Í.R. (I. frá v.): Gnðmgndur Ingólfs- son. Ólafur Guðmundsson og Jón F. fíjörnsson. Þrísundssveit Ægis, en hana skipa (t. f. v.): Logi Ein- arsson, Guðjón Ingimundarson og Ingi Sveinsson. Sigurður .1 ónsson. Sigurður að draga fram úr hinum tveimur, með þreki sínu og dupnaði. Þó náði hann ekki nærri eins góðum tíma og á síðasta meistaramóti; þá synti liann á (i min. 25.2 sek. 50 m. baksund, drengja. 1. Guðm. Ingólfsson (Í.R.) 35.8 sek. 2. Haltdór Bachmann (Æ.) 39.0 sek. 3. Leifur Jónsson (Æ.) 43.1 sek. Tími Guðmundar er mjög góður, hann er farinn að nálgast met Jónas- ar mjög á þessari vegalengd. Metið er 35 sek., og er sennilegt að ekki líði langur tími, þar til hann ryður því meti. — Halldór kemur til með að verða ágætur baksundsmaður, ef hann heldur áfram að æfa það. 400 m. frjáls aðferð, karla. 1. Ari Guðmundss. (Æ.) 5 m. 55.7 s. 2. Guðm. Guðjónss. (Á.) (i m. 13.4 s. 3. Óskar Jensen (Á.) (i m. 14.7 sek. Arj tók forystuna eftir 100 m. og hélt lienni eftir það. Síðari hluta leið- arinnar dró heldur af honum. þó náði hann góðum spretti siðast. Guð- mundur og Óskar voru mjög jafnir alla leið og mátti lengi ekki á milli sjá hvor yrði á undan. — Það er glæsilegt sundmannsefni á ferð þar sem Ari er. Einkennandi við sund hans eru liá og góð fótatök og prýði- legt rennsli í handatökunum, en á þetta er lögð mest áherzla í skriðsundi nú- tímans. Ennþá hefur Ari nokkra smá Boðsundssveit Ægis, en hana skipa (t. frá v.): Hjörtur Sigurðs- son, Hörður Sig- Urjónsson, Edvard Færseth (í huns stað sgnti Logi Einarsson) og Ásgeir Magnús- son. Ari Guðmundsson. galla, sem auðvelt ætti að vera að laga og þá má spá Ara óvenju góðri framtið sem sundmanni. 50 m. frjáls aðferð kvenna. 1. Ingibjörg Pálsdótir (Æ.) 38.1 sek. 2. Sigríður Einarsdóttir (Æ) 40.4 s. Þær syntu báðar mjög laglega. Það er langt siðan sést hafá stúlkur á skriðsundi og er vonandi að það fari að breytast. 100 m. frjáls aðferð, drengja. 1. Halldór Bachmann(Æ)l m. 18.3 s. 2. Baldur Zophoníass.(Æ.) 1 m. 20.8 s. 3. Leifur Jónsson (Æ.) 1 m. 22.9 sek. Halldór var ekki vel upplagður í þetta skiftið, hann hefir áður synt á

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.