Íþróttablaðið - 01.05.1944, Síða 30
22
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
stig (4., 8. og 11. mann). B-sveit Ár-
manns hlaut 32 stíg.
Drengjahlaupsbikarinn gaf Eggert
Kristjánsson stórkai:pm. og liafa nú
öll félögin, sem þátt tóku í hlaupinu
a'ð þessu sinni, unnið hann tvisvar.
í fyrra vann Í.R. hanit.
Vegalengdin, sem lilaupin var, er
2.2 km. Hlaupið hófst kl. 10.30 stund-
víslega í Vonarstræti og endaði á
Lækjartorgi.
SkíÖamót Akureyiar.
Lokaþáttur skíðamóts Akureyrar fór
fram á Vaðlaheiði suiinudaginn 30.
april s.l. Fór þá fram keppni í stökki
í A- og Btflokki, karla og flokki 17—
19 ára unglinga. Einnig fór fram
keppni i göngu í sömu aldursflokkum
og keppni í svigi í C-flokki.
Stökk:
í A-flokki varð Guðmundur Guð-
mundsson (K.A.) fyrstur. Fyrstur í
B-flokki var Páll Linberg (K.A.) 2.
Sigurður Þórðarson (K. A.) og 3.
Magnús Brynjólfsson (K.A.). —: I 17
-—19 ára aldursflokki varð Finnur
Björnsson (Þór) fyrstur, annar var
Vignir Guðmundsson (Þór) og 3.
Hreinn Ólafsson (Þór).
I stökki var keppt um Skíðastökks-
bikar Akureyrar — Morgunblaðsbik-
arinn — sem veittur er fyrir bezlu
þriggja manna stökksveit. K.A. vann
bikarinn að þessu sinni. í sveitinni
voru: Guðm. Guðmundsson, Páll Lín-
berg og Sigurður Þórðarson. Hlaut
sveitin 000,5 stig. Sveit Þórs hlaut
588,7 stig. — Menntaskólinn á Akur-
eyri var handhafi bikarsins.
Ganga:
Giiðm. Guðmundsson (K.A.), sigr-
aði gönguna léttilega á 30 mín. 13 sek.
Ánnar var Eysteinn Árnason (K.A.) á
37 mín. 10 sek. og 3. Magnús Brynj-
ólfsson (K.A.) 37 min. 27 sek. —
Gangan var um 12 km. Hæðarmis-
munur í göngunni var um 180 m.
Svig:
(C-flokkur): 1. Hafsteinn Þorgilsson
(Þór), 2. Sigurður Samúelsson (Þór)
og 3. Páll Linberg (K.A.).
Flokkaglíma Ármanns.
Flokkaglíma Ármanns fór fram 30.
apríl s.l. Keppt var í þrem þyngdar-
flokkum, j). e. undir 75 kg., 75— 85
kg. og yfir 85 kg.
í þyngsta flokki (yfir 85 kg.) sigr-
aði Guðmundur Ágústsson (Á.), hlaut
3 vinninga. 2. varð Haraldur Guð-
mundsson (K.R.) með 2 vinninga og
3. Einar Ingimundarson (U.M.F. Vöku)
með 1 vinning.
í 2. flokki (75—85 kg.) vann Guð-
mundur Guðmundsson (U.M.F. Trausta)
með 5 vinninga. 2. varð Davíð Hálf-
dánarson (K.R.) með 4 vinninga og
3. Rögnvaldur Gunnlaugsson (K.R.)
með 3 vinninga.
í léttasta flokki (undir 75 kg.) vann
Sigurður Hallbjörnsson (Á.), hlaut
2 vinninga. 2. varð Ingólfur Jóns-
son (Á.) með 1 vinning.
Sundmót Barnadagsins.
Þátttakendur í sundmóti Barnadags-
ins voru 184 talsins frá ýmsum skól-
um Reykjavíkur.
Boðsund æðri skóla vann sveit Iðn-
skólans á 7:04.5 mín og vann þar með
til fullrar eignar bikar þann, er
Tryggvi Ófeigsson skipstjóri hafði
gefið til þessarar keppni.
Bringusund kvenna sigraði sveit B-
liðs Gagnfræðaskólans í Reykjavík á
22:29.3 mín, og unnu þær til eignar
verðlaunastyttu, sem Sigurjón Péturs-
son á Álafossi hafði gefið.
Boðsundskeppni milli Austurbæjar
og Miðbæjarskólans fór þannig að
Austurbæjarskólinn vann á 21:20.5
mín.
Auk keppninnar fór fram sundsýn-
ing barna og tókst vel.
Glímukeppni í Mývatnssveit.
í fyrra vetur og s.l. vetur kenndi
Kjartan Bergmann glímu í Mývatns-
sveit og ríkir þar nú mikill áhugi
meðal yngri manna um þessa þjóðar-
íþrótt vora.
Nýlega hefur Guðmundur Hofdal
gefið bikar til glímukeppni í Mývatns-
sveit til minningar um efnilegan mý-
vetnskan glíinumann, Geirfinn Þor-
láksson, sem fórst af slysförum fyrir
tveimur árum. Ber bikarinn nafn Geir-
finns.
I vetur var keppt um Geirfinnsbik-
arinn í fyrsta skipti og vann Hall-
grímur Þórhallsson, Vogum hann. 2.
varð Jón Þorláksson, Skútustöðum og
3. Hermann Þórhallsson, Vogum.
Drengjaglímu Mývetninga vann
Unnar Sigtryggsson.