Íþróttablaðið - 01.12.1974, Side 31
Vandalaust að velja
gjöf íþróttamannsins
Þá eru jólin framundan með
ljós sín í skammdegismyrkrinu.
Áreiðanlega munu íþróttamenn
fá eitthvað við sitt hæfi eins og
aðrir, þegar þeir taka af pökk-
unum sínum á aðfangadags-
kvöld. íþróttafólki, og raunar
öllum, sem stunda útilíf, er auð
velt að gleðja. í dag eru verslan-
ir, sem helga sig sportvöru, orðn
ar margar, og bjóða gott úrval.
Og greinílegt var það, þegar
fréttamaður íþróttablaðsins
Iagði leið sína í nokkrar sport-
vöruverslananna fyrir nokkru,
að þar þarf varla að kvarta und-
an litlum eða lélegum viðskipt-
um. íþróttavörurnar halda stöð
ugt vinsældum, enda þótt ríkið
tolli íþróttirnar e.t.v. nokkuð
hátt.
Hákon í Sport:
SKÍÐI FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
Hann Hákon Jóhannsson í
Sport á Laugavegi 13 sýndi okk-
ur ótrúlegt úrval af skíðum,
skíðastöfum, fatnað allskonar
á skíðafólk. Já, og skíðafólkið
getur raunar fengið skíði allt
frá það fer að ganga á postul-
unum tveimur, svo smá eru þau
minnstu skíðin, sem í boði eru.
Og séu menn ekki á því að
treysta sér í jafnvægisleik í
brekkunum, þá eru snjóþoturn
ar jú alltaf lausn. Gönguskíði
kosta nú frá 3548 krónum,
Montan-skíðaskór rúmlega 2600
krónur og skíðaúlpur liðlega
3000 krónur. Það kostar því
talsvert fé að „galla sig upp“
fyrir fyrstu skíðaferðina. En
Hákon í Sport (lengst til liœgri) ásamt Sævari Jónssyni og Jóhanni Hákonarsyni
meO sýnishorn af skiOaúrvalinu í ár.
31