Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.09.1975, Qupperneq 5

Íþróttablaðið - 01.09.1975, Qupperneq 5
i blaóinu ATVINNUMENNIRNIR Góð frammistaða íslenzkra knattspyrnu- manna hefur orðið til þess að erlend lið leita hingað fanga. Þegar hafa þrír íslenzkir knatt- spyrnumenn gert samning við erlend félög og vekja mikla athygli fyrir getu sína og dugnað. íþróttablaðið ræddi við atvinnumennina Ás- geir Sigurvinsson, Jóhannes Eðvaldsson og Guðgeir Leifsson. KNATTSPYRNUMÓTIN í SUMAR Það er ekkert smóræðisverk að skipuleggja knattspyrnumót og raða niður leikjum. Því fd lesendur að kynnast í viðtali íþróttablaðsins við Helga Daníelsson, formann mótanefndar KSÍ. PÓLITÍK OG ÍÞRÓTTIR Töluverður munur er að fjalla um íþróttir eða stjórnmól segir Steinar J. Lúðvíksson, blaðamaður á Morgunblaðinu sem fjallað er um í þættinum íslenzkir íþróttafréttamenn. KAFFISOPI Á TRÖÐ Hópur íþróttamanna og íþróttadhugamanna fó sér kaffisopa d Tröð í hódeginu og þangað fór Iþróttablaðið í heimsókn. 18. OLYMPÍULEIKARNIR Nú styttist til þess tíma að Olympíuleikarnir í Montreal hefjast, og er nokkuð fjaIlað um keppni þeirra í blaðinu. FJÁRSKORTUR HAMLAR Rætt er um starfsemi Sundsambands íslands í viðtali við formonn þess, Torfa Tómasson. MYNDIR Myndir d forsíðu blaðsins eru frd úrslitaieik í Bikarkeppni KSÍ, en þar urðu Keflvíkingar sigurvegarar. Myndir hér til hliðar eru af ís- landsmeisturum í knattspyrnu. Efst: Akurnes- ingar sigurvegarar í 1. deild, en síðan: Breiða- blik sigurvegari í 2. deild; ÍBV sigurvegari í 2. flokki; Breiðablik, sigurvegari í 3. flokki; Breiðablik, sigurvegari í 4. flokki og Þróttur sigurvegari í 5. flokki. 5

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.