Íþróttablaðið - 01.09.1975, Side 7
Fyrir hinn almenna blaóalesanda og þá
sem fylgjast með íþróttum er líf atvinnu-
knattspvrnumannsins í flestum tilfeilum
dans á rósum. Skuggahliðarnar eru sjaldn-
ast dregnar fram í dagsljósið, né hin erfiða
samkeppni og það kröfuharða líf sem fylgir
því að vera frægur. Það vill einnig oft
gleymast að aðeins örfáir ná því að komast
á toppinn og að geta baðað sig í frægð, fé
og frama. Þeir eru langtum fleiri, sem þrátt
fyrir ekki minna erfiði verða að gera sér að
góðu að standa í skugganum og hafa ekki
meiri laun en iðnaðarmaður í sinni dag-
launavinnu.
Fimm íslenzkir knattspyrnumenn hafa á
síðustu þremur áratugum gerst atvinnu-
menn í knattspyrnu. Gengi þeirra hefur
verið misjafn í |>eim starfa, sumir hafa gert
garðinn frægan og komið heim til íslands á
ný sem kunnir menn og vel settir fjárhags-
lega. öðrum hefur gengið miður vel og ef
til vill hafa þeir þó ekki lagt minna á sig.
Atvinnuknattspyrnumaðurinn þarf að hafa
sérstaka hæfileika til að bera til að spjara
sig í hinum harða heimi atvinnuknatt-
spyrnunnar.
Albert Guðmundsson þingmaður og
borgarfulltrúi varð fyrstur íslendinga til að
gerast atvinnumaður í knattspyrnu. Albert
lék á árunum 1946—54 með ýmsum þekkt-
ustu knattspvrnuliðum í Evrópu —
Glasgow Rangers, Arsenal, Nancy, AC
Milan, Racing de Paris og Nizza. Albert
var sannkallaður snillingur á knattspyrnu-
vellinum, enda ekki að ástæðulausu að
honum var gefið viðurnefnið „hvíta perl-
an.“ Albert var afburðamaður í knatt-
spyrnu og enn þann dag í dag er hans
minnzt með lotningu í þeim löndum þar
sem hann lék á sínum tíma.
Þórólfur Beck gerðist atvinnumaður í
knattspyrnu í Skotlandi árið 1961. Fyrst
lék hann um þriggja ára skeið með St.
Mirren, síðan lá leiðin til Glasgow Rang-
ers, þá til Rouen í Frakklandi og feril sinn
sem atvinnumaður í knattspyrnu endaði
hann í Bandaríkjunum með St. Louis Star.
Hermann Gunnarsson varð þriðji ís-
lendingurinn til að skrifa undir atvinnu-
mannasamning. Var það í Austurríki hjá
félaginu Eisenstadt. Þrátt fyrir að Her-
mann stæði sig allvel { Austurríki náði
hann ekki að festa rætur og kom heim á ný
eftir skamma dvöl þar.
Þá var röðin komin að Jóhannesi
Eðvaldssyni. Hann hélt árið 1971 til S-
Afríku og gerðist þar atvinnumaður um
tíma með liðinu „Cape Town.“ Jóhannesi
líkaði vistin ekki sérlega vel og kom heim
á nýjan leik og byrjaði aftur að leika með
Val. í sumar undirritaði Jóhannes svo
aftur atvinnumannasamning. Að þessu
sinni hjá hinu fræga félagi Celtic í Skot-
landi. Ásgeir Sigurvinsson varð næstur í
röðinni og síðan Guðgeir Leifsson.
Um þessar mundir standa nokkrir ís-
lenzkir knattspyrnumenn I viðræðum við
erlend knattspyrnufélög og hafa hug á að
reyna fyrir sér í heimi atvinnuknatt-
spyrnunnar. Má í því sambandi nefna
Martein Geirsson, Jón Pétursson, Óskar
Tómasson og fleiri. Þá hafa nokkrir ts-
lendingar leikið um tíma með erlendum
atvinnumannaliðum og þá ýmist með aðal-
eða varaliðum viðkomandi félaga. Skal í
því sambandi fyrst frægur nefndur
Ríkharður Jónsson, sem dvaldi um tíma
hjá Arsenal í Lundúnum. Einnig mætti
nefna Elmar Geirsson, Matthías
Hallgrímsson og Inga Björn Albertsson.
Hér á eftir fara viðtöl við þá fslendinga
sem um þessar mundir stunda atvinnu-
mennsku með erlendum liðum, þá Ásgeir
Sigurvinsson, Jóhannes Eðvaldsson og
Guðgeir Leifsson. Má Ijóst vera að allir
hafa þessir piltar fengið nokkuð fyrir sinn
snúð er þeir undirrituðu atvinnumanna-
samninga sína. Virðast þeir allir spjara sig
vel hjá sínum nýju húsbændum, þó svo að
það skuli viðurkennt að íslendingur er-
lendis virðist heimsfrægur og hin mesta
stjarna sjáist nafn hans á prenti í erlendu
riti.
Hvað um það, þá hefur hinn tvítugi
Ásgeir Sigurvinsson þegar getið sér gott
orð í Belgíu og má mikið vera ef pilturinn
sá á ekki eftir að gera garðinn frægan um
alla Evrópu þegar fram líða stundir. Það
skal haft í huga í sambandi við Ásgeir að
hann er aðeins 20 ára og sagt er að
knattspyrnumaður sé ekki kominn á topp-
inn fyrr en 25 ára.
Jóhannes Eðvaldsson er starfandi í
Skotlandi og berast mun oftar fréttir af
honum en félögunum í Belgíu. Hefur
Jóhannes á örskammri stundu orðið stórt
nafn í skozkri knattspyrnu — skotist upp á
stjörnuhimininn með hraða eldflaugarinn-
ar. Jóhannes hefur staðið sig betur en
nokkurn óraði fyrir og ætti að geta verið á
toppnum í nokkur ár til viðbótar.
Guðgeir Leifsson hefur stöðugt sótt sig
með félagi sínu Charlesroi í Belgíu. Það
félag er minnst þekkt af liðum þeirra
félaga hér á landi, en Ijóst má vera af
fréttum að Guðgeir stendur vel fyrir sínu
og er íslenzkri knattspyrnu til sóma, eins
og þeir félagar allir.
ingarnir f ímm
hafa fyrir sér
róa heimí
attspyrnumannsins
7