Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 11
eKic
er lið,
sem á
að vinna
hvern
einasia
leik
— Ég ætla mér að ná ár-
angri í knattspyrnunni í
Skotlandi og ég skal vera
kominn á toppinn áður en
keppnistímabilið er liðið,
sagði Jóhannes Eðvaldsson,
er fréttamaður íþróttablaðs-
ins ræddi við hann fyrir
nokkru síðan. — Það er hörð
keppni um að komast í lið
hérna og Celtic hefur úr stór-
um hópi sterkra leikmanna
að velja, þannig að róðurinn
verður erfiður. Ég held þó að
mér ætti að takast það sem
ég ætla mér, byrjunin lofar
að minnsta kosti góðu.
Jóhannes Eðvaldsson gerði
í sumar atvinnumannasamn-
ing við skozka liðið Celtic til
þriggja ára og verður hann
laus allra mála við félagið 28
ára gamall. Jóhannes hafði
áður reynt fyrir sér á knatt-
spyrnuvöllum annarra landa
áður en hann ílentist í Skot-
landi. Tvítugur lék hann í
norsku I. deildinni með fél-
aginu Start frá Kristianssand
og voru félagar hans þar m.a.
tveir leikmenn, sem í sumar
voru fastamenn í norska
landsliðinu. Jóhannes dvaldi
við nám í Noregi í íþrótta-
kennslu sumarlangt, en Jó-
hannes er íþróttakennari að
mennt. Næsti viðkomustaður
Jóhannesar var Jóhannesar-
borg í Suður-Afríku, en þar
lék hann með félaginu
„Cape Town“. Ekki líkaði
Jóhannesi vistin sérlega vel
þar og hann kom með sínum
gömlu félögum í Val í þrjú
sumur, varð á ný fastamaður
í landsliðinu og fyrirliði þess
í mestu velgengnisleikjum
íslenzkrar knattspyrnu fyrr
og síðar gegn A-Þjóðverjum í
Evrópukeppni landsliða.
Hugur Jóhannesar stefndi
þó í atvinnumennskuna og
eftir að hafa kannað mögu-
leika hjá ýmsum atvinnu-
mannaliðum hélt hann til
Danmerkur síðasta vor og
hóf að leika með danska lið-
inu Holbæk. Fljótlega kom
að því að fjársterk félög frá
öðrum löndum fóru að sýna
áhuga á að fá Jóhannes í
sínar raðir og í byrjun ágúst
skrifaði hann undir samning
við Celtic. — Það var úr
ýmsu að velja fyrir mig, eftir
að njósnarar frá félögum í
Þýzkalandi, Hollandi og
Belgíu, fóru að fylgjast með
leikjum okkar í Holbæk,
sagði Jóhannes. — Þegar
Celtic svo gerði mér tilboð
ákvað ég fljótlega að slá til
því Celtic er að mínu áliti eitt
af alsterkustu knattspyrnu-
liðum Evrópu. Aðstaðan er
öll mjög góð hjá liðinu og
áhorfendaskarinn meiri en
hjá nokkru öðru skozku liði,
að Rangers undanskildu, en
þessi tvö lið skera sig úr á
flestum sviðum í skozku
knattspyrnunni.
— Celtic er lið sem á að
vinna hvern einasta leik, það
kemur ekkert minna til
greina. Sigurs er krafist í
hverjum leik, enda er ekkert
annað viðurkennt en að
Celtic sé á toppnum. Pening-
ar spila alls staðar inn í hjá
atvinnuknattspyrnumannin-
um. Ef illa gengur þá tapar
hann bónus, sem er ekki svo
lítill hluti af tekjunum,
áhorfendum fækkar og það
kemur þá um leið niður á
kassa félagsins, sem þá gerir
minna fyrir leikmenn sína.
Þetta leiðir hvað af öðru, allt
byggist á árangrinum.
— Mér hefur gengið vel,
verið fastamaður í liðinu,
skorað mörk í nokkrum
leikjanna og fengið góða
dóma í blöðum. Meðal ann-
ars hef ég fjórum sinnum
verið valinn í lið vikunnar
hjá blaði einu mjög virtu hér
í Skotlandi. Ég hef fyrst og
fremst hugsað um öryggið í
leikjunum, losað mig við
knöttinn til samherja um
leið, í stað þess að reyna
eitthvað upp á eigin spýtur.
Ég ætla mér stóra hluti, en til
að byrja með þá ætla ég að
gulltryggja mig í liðinu, ekki
aðeins hjá forráðamönnum
liðsins, heldur einnig meðal
áhorfenda og í blöðum. Þeg-
ar maður er orðinn sjálfsagð-
ur í liðið og kann á kerfið
hérna, er frekar hægt að
leyfa sér að gera hluti upp á
eindæmi.
— Það er langt frá því að
atvinnumennskan sé bara
leikur og gaman. Baráttan er
harðari en almenningur gerir
sér grein fyrir og ég vil ekki
lifa þann dag þegar fer að
ganga illa og fólk sem maður
hélt að væru vinir sínir í gær,
snýr við manni bakinu og
maður verður alls staðar út-
skúfaður af því að maður
hefur ekki staðið sig nógu
vel. Dæmi um þetta eru alls
staðar að gerast í hinum
harða heimi atvinnuknatt-
spymunnar og ég vona bara
að ég lendi ekki í slíku, sagði
Jóhannes að lokum.
n