Íþróttablaðið - 01.09.1975, Page 13
oktor-
arnir
eru
stjanandri
vrid
okkur*
þó aðeins sé um
smávægileg
meiðsli að ræða
Guðgeir Leifsson er þriðji íslenzki
knattspyrnumaðurinn, sem leikur með at-
vinnumannaliði. Það er félagið Charlesroi
í samnefndri borg í Belgíu. Það kom ekki
á óvart er Guðgeiri var boðinn samningur
hjá þessu félagi því Guðgeir hefur í nokk-
ur ár verið einn snjallasti leikmaður lands-
liðsins og þá sömuleiðis með þeim félög-
um, sem hann hefur leikið með, Víkingi
og Fram. Félög þeirra Ásgeirs og Jóhann-
esar hafa bæði staðið sig allvel í leikjum
sínum á þessu keppnistímabili, en liði
Guðgeirs hefur hins vegar gengið illa.
— Það er hreint út sagt óskiljanlegt hve
illa okkur hefur gengið, allt er gert fyrir
leikmennina og ekkert til sparað, sagði
Guðgeir er við ræddum við hann á dög-
unum. — Milljónamæringurinn, sem á
félagið eyddi miklu fé í leikmenn síðast-
liðið sumar og almennt var búist við því
að Charlesroi yrði eitt af toppliðunum í
Belgíu í vetur. En liðið hefur ekki náð að
smella saman og ég er hræddur um að
róðurinn verði erfiður hjá okkur í vetur.
— Jú, blessaður vertu, aðstöðumunur-
inn er gífurlegur miðað við það sem er
heima. Æfingaaðstaða er öll mjög góð,
leikvangurinn sem við leikum á einn sá
bezti sem ég hef kynnzt. 3—4 doktorar eru
stjanandi við okkur, þó aðeins sé um
smávægileg meiðsli að ræða. Svo eru
nuddarar, alls konar aðstoðarmenn við
þjálfunina, fullkomin tæki til allra hluta
o.s.frv.
Reglumar í belgísku knattspyrnunni eru
þannig að aðeins mega þrír útlendingar
leika með hverju liði. Hjá Charlesroi eru
útlendingarnir fjórir, Júgóslavi, Hollend-
ingur, Þjóðverji og svo Guðgeir Leifsson.
Sagt er að Guðgeir, Hollendingurinn og
Júgóslavinn séu sterkustu menn liðsins, en
Þjóðverjinn hins vegar einn sá lélegasti.
Hann var keyptur fyrir rúmlega 50
milljónir til félagsins fyrir tveimur árum
og höfðu þá mörg félög verið á höttunum
eftir honum, enda hafði hann verið lang-
markahæsti leikmaðurinn í belgísku 2.
deildinni. Þegar hann svo kom til Charles-
roi skoraði hann ekki eitt einasta mark og
hafði aðeins áhyggjur í för með sér fyrir
forráðamenn liðsins. Reyna þeir nú allt
hvað þeir geta að nota þennan leikmann
til að reyna að koma honum í verð aftur
og meiningin er að selja hann um leið og
sæmilegt tilboð fæst, en leikmann sem
ekki er notaður hefur enginn áhuga á að
kaupa.
Af þessum orsökum hafa ýmist Guðgeir
eða Hollendingurinn orðið að hvíla í leikj-
um Charlesroi, en um þessar mundir er
Hollendingurinn að fá belgískan rikis-
borgararétt og Ætti Guðgeir þá um leið að
verða fastamaður í liðinu. — Mér líkar
mjög vel hérna úti og reyndar alltaf betur
og betur eftir því sem lengra líður. Það
eina sem ég er hræddur við er að mórall-
inn í liðinu verði slæmur er líður á vetur-
inn ef ekki fer að ganga betur, sagði
Guðgeir. — Franskan er að vísu erfið, en
það eru aðeins örfáir sem tala ensku
héma. Frönskukunnáttan ætti þó að auk-
ast eftir því sem maður er lengur héma,
þannig er það vandamál verður vonandi
fljótlega úr sögunni.
Guðgeir er sá eini þeirra þremenning-
anna, sem er lofaður og býr hann ásamt
konu sinni, Andreu Steinarsdóttur, og
tveimur börnum í stórri fjögurra herbergja
íbúð, sem félagið lét þeim í té. Nýlega
keypti Guðgeir sér svo nýjan bíl, sport-
módel af Capri, sem Guðgeir sagði að
væri eins og kappakstursbíll. Er íþrótta-
blaðið talaði við Guðgeir varhann einmitt
að leggja af stað á kappakstursbílnum á
æfingu, en um kvöldið var frí og þá var
meiningin að borða myndarlega afmælis-
tertu í rólegheitunum, en Guðgeir varð
einmitt 24 ára þann dag.
13