Íþróttablaðið - 01.09.1975, Page 20
„Mín fyrstu afskipti af blaðamennsku
voru umsjón mín með unglingasíðu í Vísi,
er ég var á síðasta ári í Kennaraskólanum
en síðan réðist ég haustið eftir sem þing-
fréttaritari Morgunblaðsins. Ég var þá
haldinn mikilli framagirni innan Sjálf-
stæðisflokksins og taldi þingfrétta-
mennsku besta stökkpallinn inn á stjórn-
málasviðið, þar gæti ég kynnst öllum
málum og flokksforingjum. Það er
skemmst frá því að segja að öll mín
framagirni og áhugi hurfu út í buskann
eftir tvær vikur í starfi og hef ég upp frá
því ekki haft áhuga á pólitískum frama“
sagði Steinar J. Lúðvíksson íþróttafrétta-
ritari Morgunblaðsins er við hittum hann
á heimili hans og eiginkonu hans Gull-
veigar Sæmundsdóttur að Sunnuflöt 34 í
Garðahreppi.
Steinar hefur verið íþróttafréttaritari
Morgunblaðsins undanfarin 7 ár, en hafði
þá starfað sem þingfréttaritari um þriggja
ára skeið með smáíhlaupum í íþróttaskrif.
Steinar er 34 ára gamall, fæddur og uppal-
inn á Hvammstanga. Ekki segist hann
hafa verið mikill bógur í íþróttum á upp-
vaxtarárum, en þó tekið nokkrum sinnum
þátt í frjálsíþróttamótum í heimahéraði
sínu án þess þó að nafn hans færi sem
eldur í sinu um landið og einu afskipti
hans af Ólympíuleikunum hafa verið úr
fjarska. Auk blaðamennskustarfa sinna er
Steinar afkastamikill rithöfundur og hafa
bækur hans Þrautagóðir á Raunastund,
björgunar og sjóslysasaga Islands öðlast
miklar vinsældir og nú er að koma út 6.
bindi þess safns eftir hann. Þá vitum við
einnig að hann á fullgerða skáldsögu ofan
í skúffu hjá sér, en hefur ekki enn viljað
láta hana í hendur útgefanda þótt ýmsir
hafi falast eftir henni. Steinar á mikið og
gott bókasafn ver helst tómstundum sín-
um, sem þó eru fáar í erilsömu starfi
íþróttafréttaritarans við lestur. Sér til
heilsubótar stundar hann badmington
með félögum sínum á Mbl. og þykir vel
liðtækur í þeirri grein.
— Hvernig atvikaðist það Steinar að þú
fórst úr þingfréttamennskunni yfir í íþrótt-
imar?
— Jafnframt því að skrifa um pólitísku
íþróttirnar fór ég fljótlega að aðstoða Atla
Steinarsson, sem þá var íþróttafréttaritari
Mbl., hljóp í skarðið fyrir hann þegar
hann var í fríi og aðstoðaði er mikið var
um að vera.
— Stökkstu þá alskapaður úr pólitíkinni
yfir í íþróttir?
— Nei, ég álít að maður verði aldrei
alskapaður í blaðamennsku og skiptir ekki
máli hvað ferillinn kann að verða langur.
En reginmunurinn á því að skrifa um
Islenzkir
íþrótia-
fréttamenn:
pólri-
tíska f rama
hvarf út
Rætt vió Steinar
J* Lúóvíksson
íþrétta-
frétiamann
Vforgunbladsins
eftrir
í pring
20