Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 21

Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 21
íþróttir og Alþingi, er að í íþróttunum skrifar maður um lifandi fólk en í þinginu meira og minna um misjafnlega merkileg mál og málaflokka. — Hvernig gekk þér að aðlagast störf- um íþróttafréttaritara? — Ég held að það hafi gengið all sæmilega. Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á íþróttum og fylgst með íþrótta- skrifum. Þegar ég svo byrjaði Iagði ég mig mjög fram um að kynna mér hinar ein- stöku íþróttagreinar, sótti æfingar og las mér til í kennslubókum um þær greinar, sem ég ekki þekkti vel. Þetta er grundvall- arskilyrði fyrir því að hægt sé að skrifa um íþróttafólkið og starf þess. Blaðamaður er alltaf í námi og verður stöðugt að vera að kynna sér hlutina, miklu meira en hann nokkru sinni lætur fara frá sér. — Hverja telur þú vera helztu grund- vallarreglu, sem íþróttafréttamaður þarf að temja sér í starfi? — Um það má sjálfsagt deila og margar kenningar uppi. Ég lærði töluvert af Atla Steinarsyni og dreg töluvert dám af hans íþróttaskrifum. Atli var einn af braut- ryðjendum í íþróttaskrifum á íslandi og vann mjög gott starf að mínum dómi. Eitt megineinkenni á íþróttaskrifum Atla var hófsemi og ég held að það sé mjög mikið atriði hjá íþróttafréttamanni að gæta hóf- semi í orðum er hann fjallar um einstakl- inga og annað og reyna fremur að sjá hið jákvæða í leik og mönnum en hið nei- kvæða þó oft megi þannig skapa meiri sensasjón í skrifum. íþróttafréttamenn eru að vissu leyti á öðrum báti en aðrir blaðamenn vegna þess að þeir eru alltaf að leggja persónulegt mat á það sem fram grirmn í buskann 2 vrikur fréttuméé fer. Má sjálfsagt fremur flokka þá í hóp með bókmennta- og listagagnrýnendum en þá sem fjalla um almennar fréttir, enda eru margar íþróttagreinar hrein list og ég held að góðir íþróttamenn þroski jafnvel meira sína hæfileika en færustu lista- menn. En þarna liggur einnig hið sama til grundvallar árangri, þrotlaust starf og ög- un. — Nú hefur það oft verið gagnrýnt, að íþróttafréttaritarar leggi í skrifum sínum megináherzlu á flokkaíþróttirnar þ.e.a.s. handknattleik og knattspyrnu, en vanræki aðrar greinar. — Það er töluverður sannleikur í þessari gagnrýni, en einnig eðlileg skýring. Þessar tvær greinar sem þú nefnir eru þær grein- ar, sem íslendingar hafa náð mestum árangri í á síðustu árum. I þessum grein- um hefur mest verið um að vera og mest samskipti við útlönd. Þarna höfum við því mestan samanburð við útlönd og við vit- um að á sl. áratug hefur okkar handbolti verið á alþjóðamælikvarða. í knattspyrn- unni hefur þetta verið nokkuð upp og niður, en árangur t.d. undanfarin tvö ár verið góður. Því er það að mínum dómi eðlilegt að íþróttafréttamenn gefi þessum greinum meiri gaum. f þessu sambandi má benda á eitt dæmi t.d. frjálsar íþróttir þar eru kannski keppendur á heilu móti færri en í einum knattspyrnuleik. Hitt verð ég svo að viðurkenna að persónulega hef ég meira gaman af einstaklingsíþrótt- um og þá sérstaklega frjálsum íþróttum. — Hvemig stendur á því að í dag eru miklu færri áhorfendur á knattspyrnu- leikjum en var fyrir 10—20 árum, er kannski allt að 10 þúsund manns tróðu sér inn á Melavöllinn til að sjá Val og KR leika? — Ég held hugsanlega að skýringin sé stí að þá voru svo miklu færri leikir. Þegar Akurnesingar urðu fslandsmeistarar í fyrsta sinn 1951, léku þeir aðeins 4 leiki. Hins vegar finnst mér mesta breytingin á íslenzku íþróttastarfi frá því að ég fór fyrst að fylgjast með því af alvöru hve þátttakan hefur aukist gífurlega á öllum sviðum og breytingamar á sl. 5—7 árum verið með hreinum ólíkindum. — Hvað er þér eftirminnilegast úr starf- inu? — Það sem ég hef fjallað um með mestri ánægju í Mbl. var leikur íslands og A-Þýskalands í knattspymu á Laugardals- vellinum í sumar. Ég hef gífurlega mikinn metnað fyrir hönd íslendinga, er þeir keppa við útlendinga og þegar maður verður vitni að öðrum eins atburði, er íslenzkir knattspyrnumenn vinna sigur yfir knattspyrnumönnum milljónaþjóða, sem allir eru atvinnumenn getur maður ekki annað en verið innilega glaður. Framhald á bls. 37 21

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.