Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 30
þar sem skorað var á fjölmiðla að sinna
sundíþróttinni meira en þeir hafa gert.
— Við höfum mikinn áhuga á að koma
á stofn einhvers konar almenningskeppni,
sem kæmi þá í stað Norrænu sundkeppn-
innar, en ákveðið var á síðasta ársþingi
Norrænu sundsambandanna að fella
keppnina niður. fsland og Noregur voru á
móti, en máttu sín ekki gegn marganum.
Við höfum mikinn hug á að stofna til
einhverrar annarra keppni og eru allar
hugmyndir og ábendingar í því sambandi
vel þegnar.
Líka gaman að sjá fiskana synda
Torfi Tómasson hefur verið formaður
Sundsambandsins í fintm ár, en óvíst er
hvort hann gefur kost á sér til starfans
næstu árin. — Ég hef alltaf sagt að menn
eigi ekki að standa í þessu nema í mesta
lagi 5—6 ár, sagði Torfi, og ætli maður
reyni ekki að standa við það. Krafturinn
dvínar og áhuginn minnkar með árunum,
þannig að yngri og ferskari menn eiga að
taka við.
Á sínum tíma var Torfi framarlega í
flokki íslenzkra sundmanna og setti m.a.
íslandsmet í 1000 m bringusundi árið
1957. Torfi var orðinn 16 ára er hann fór
að æfa sund og sagði er fréttamaður
íþróttablaðsins ræddi við hann að það
væri kannski vegna þess hve seint hann
kynntist íþróttinni að hann entist svo lengi
í henni, en Torfi er nú fertugur að aldri.
Hann var orðinn annar tveggja keppenda
Ægis í sundi, er hann gerðist þjálfari og
formaður félagsins, hinn keppandinn var
Guðmundur Þ. Harðarson. Síðan varð
Torfi stjórnarmaður í Sundsambandinu
áður en hann varð formaður.
— Sundið hefur verið hálft líf manns
ásamt fjölskyldunni, sagði Torfi, en lítil
dóttir Torfa skaut því inn í að hann hefði
nú líka mikinn áhuga á fiskunum. Við
spurðum Torfa hvað hún meinti með því.
— Jú, sagði Torfi, ég hef ntjög gaman af
skrautfiskum — það er líka gaman að sjá
þá synda.
\
Verslunar-
bunki
íslonds
hf.
Keflavík, útibú 92-1788.
Við flytjum bróðlega í nýtt
húsnæði að Vatnesvegi 14.
Við vonumst til að íþróttafólk
á Suðurnesjum lóti okkur
annast sín bankaviðskipti.
Annast öll bankaviðskipti ó
innlendum vettvangi,
sérstaklega á sviði verzlunar
og viðskipta.
V /
30