Íþróttablaðið - 01.09.1975, Blaðsíða 31
Fatlaðir hafa fyrir nokkru byrjað
íþróttastarf sitt á félagslegum grundvelli
með stofnun eigin íþróttafélaga í Reykja-
vík og á Akureyri. Væntanlega koma fleiri
félög á eftir. Á s.l. vetri voru haldin fyrstu
íþróttamót fatlaðra. Á Akureyri var keppt í
bogfimi og boccia og í Reykjavík í curling.
Allt eru þetta nýjar íþróttagreinar hér á
landi en njóta mikilla vinsælda þar sem
þær hafa náð fótfestu á alþjóðavettvangi. Á
myndinni eru sigurvegarar á Curling-
mótinu, sem haldið var á vegum {þróttafél-
ags fatlaðra í Reykjavík, ásamt þjálfurum
og fulltrúum þeirra samtaka, er gáfu bik-
ara og verðlaunapeninga. Sitjandi f.v.:
Ragnar Hallsson, 3. verðl. í sitjandi curl-
ing, Viðar Guðnason, 1. verðl. í sitjandi
curling einstaklinga og 2. verðl. í sveita-
keppni. Arnór Pétursson, 1. verðl. í sveitar-
keppni og 2. verðl. sitjandi einstakl.keppni.
Standandi frá vinstri: Jóhann Briem,
fulltr. Lionskl. Njarðar, sem gaf verð-
launapeninga, Sverrir Friðþjófsson móts-
stjóri og aðstoðarþjálfari, Sigurður Magn-
ússon I. verðl. einstakl. standandi og 1.
verðl. sveitarkeppni, Tómas Magnússon, 1.
verðl. sveitarkeppni, Ragnar Þórhallsson,
3. verðl. sveitarkeppni, Rafn Sigurðsson og
Grétar Felixson, fulltrúar Kiwaniskl. Esju,
sem gaf verðlaunabikara og Júlíus Arnar-
son þjálfari og leiðbeinandi félagsins.
o
SHELLSTÖÐIN - HELLISSANDI
hefur umboð fyrir: SHELL-vörur, kynditæki o. s. frv.
Kvöldsala og sölubúð fyrir ferðafólk opin daglega til kl. 23.00.
SHELLSTÖÐIN,
KEFLAVÍKURGÖTU, SÍMI 93-6615, HELLISSANDI
31