Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Side 12

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Side 12
Eyjólfur ísólfs,son á Hlyn. mætt. Því miður gat Loka úr Reykjavík ekki keppt seinni dagana vegna helti og Glóa úr Reykjavík komst ekki í úrslita- hlaupið. Sigurvegari í 350 metra stökk- inu varð Nös, Jóns Ólafssonar, Urriða- vatni, knapi Stefán Sturla Sigurjónsson á 24,5 sek. en næstar komu Gjálp frá Laugarvatni og Blesa frá Hvítárholti. í 800 metra stökkinu urðu úrslit nokkuð óvænt því Þjálfi Sveins K. Sveinssonar, sem oft hefur sigrað á þessari vegalengd féll úr í milliriðlum og Frúar-jarpur, Unnar Einarsdóttur, íslandsmethafinn í greininni náði ekki að blanda sér í baráttuna um fyrstu tvö sætin. Sigurvegari varð Gustur Björns Baldurssonar, sem einnig sat hestinn á 63,2 sek. Almennt voru hestamenn ánægðir með þetta landsmót og þá sérstaklega með hversu glæsileg hross mættu þar til keppni en eins um önnur mót með líku sniði, eru kannski ekki allir jafn ánægðir með hvernig staðið var að margvíslegri aðstöðu og þjónustu á mótssvæðinu. Hestamenn koma vænt- anlega saman til nýs landsmóts að fjór- um árum liðnum og þá á Norðurlandi og þá sennilega annaðhvort á Mel- gerðismelum eða Vindheimamelum. — tg. 12

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.