Íþróttablaðið - 01.07.1978, Blaðsíða 42
Keppnin
of fljótt
aðal-
atriðið
Heimsókn á æfingu
hjá 5. flokki Vals.
Drengirnir rekja knöttinn eftir
ákveðnum reglum.
sem hefur með þjálfun 5. flokks C að
gera. Hann sagði að strákarnir í 5.
flokki væru í kring um 60. Þeir skiptust
þannig að um 30 væru í A og B liðinu
sem Ingi Björn þjálfaði og síðan væri
hann sjálfur með hina 30. Ekki var Mile
ánægður með það hvernig við byggjum
upp ungu knattspyrnumennina okkar.
Hann sagði að allt of snemma væri lögð
áherzla á knattspyrnu sem keppnis-
grein og það að vinna yrði allt of fljóttt
aðalatriði í augum drengjanna. Mile
sagði að drengir í 5. flokk væru svo
ungir og ómótaðir að taugar þeirra
væru ekki undir það álag búnar sem
keppnisíþróttum fylgdi. Mile kvað það
miklu nær að undirbúa drengina sem
bezt fyrir leiki í eldri flokkunum með
því að kenna þeim undirstöðuatriði
knattspyrnunnar og láta þá æfa þau í
leikjaformi. Því hann kvað það algert
aðalatriði að drengirnir hefðu gaman af
því sem þeir væru að gera. Öðruvísi
næðist aldrei upp leikgleði og góð
samvinna þeirra í millum.
— Það er áreiðanlegt að takmarkið
með leikgleðina er ekkert vandamál hjá
Völsurum, því ánægjan, einbeitnin og
kappið skín út úr hverju andliti á æf-
ingu. Einn og einn strákur gaf sér þó
tíma til að kasta á okkur nokkrum orð-
um um leið og hann hljóp fram hjá.
Sá fyrsti til slíks góðverks var Edward
Edwardsson, 11 ára herramaður í A liði
5. flokks. Hann sagðist oftast spila
stöðu tengiliðs í leikjum, en á æfingum
léki hann fleiri stöður. Hann var að því
spurður hvernig honum þættu stelpur í
fótbolta og sagði hann að þær væru
Margur er knár þótt hann sé smár.
Sjálfsagt geta fáir sem fylgjast með
knattspyrnuæfingu 5. flokks Vals dregið
í efa sannleiksgildi málsháttarins hér að
ofan. Þeir eru svo sannarlega ekki háir í
loftinu guttarnir í 5. flokk Vals, en þrátt
fyrir það geta margir þeirra sýnt stór-
snjalla boltameðferð og stundum allt að
því meistaraleg tilþrif. Því er það að
maður fyllist bjartsýni á framtíð ís-
lenzkrar knattspyrnu — og íþrótta yfir-
leitt þegar fylgzt er með æfingum þess-
ara vösku stráka.
— Blaðamaður íþróttablaðsins átti
leið inn á Hlíðarenda þeirra Valsmanna
ekki alls fyrir löngu og staldraði þá við
um stund. Fyrstur var tekinn tali Mile,
42