Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 15
eiga góða möguleika á að komast í aðra
umferð UEFA-keppninnar, en til þess
verða þeir að eiga minnst tvö mörk inni
á Glentoran úr fyrri leiknum, þ.e.a.s. ef
það er heimaleikur.
Magdeburg, mótherji Vals, er betra
lið en Glentoran, og það allverulega.
Leikmenn liðsins eru hundrað prósent
atvinnumenn á austantjalds máta. Þeir
leika mjög „fastan bolta“ og yfirleitt
maður á mann, og hafa með því kerfi
náð upp liði sem er framúrskarandi lið í
Austur-Þýzkalandi og á félagið raunar
uppistöðuna í austur-þýzka landslið-
inu. Það verður örugglega harður leikur
á Laugardalsvellinum 13. september
n.k. og ég hef trú á því að ef Valsliðið
nær sér vel upp, þá verði það ánægðir
knattspyrnuunnendur sem yfirgefa
völlinn þann dag.
FC Köln, mótherji Akurnesinga, er
sennilega bezta liðið af þessum þremur.
Þar eru mjög snjallir leikmenn á ferð-
inni sem leika mjög hreyfanlega. Stutt
þríhyrningsspil er þeirra aðalsmerki og
mega Skagamenn virkilega gæta sín á
þeim, sérstaklega þar sem þeir þurfa að
leika á útivelli fyrst, og er því öruggt að
Kölnarliðið mun leika þar á fullu.
Mikil ásókn er núna í íslenzka knatt-
spyrnumenn, og virðist hún koma frá
þremur stöðum. í fyrsta lagi frá Belgíu,
í öðru lagi frá Danmörku og í þriðja lagi
frá Tony Knapp. Mikið hefur verið rætt
og ritað um þetta mál og skoðanir
manna eru mismunandi. Allir eru þó
sammála um að ekkert réttlæti sé í því
að erlend félög geti labbað hér um og
valið sér leikmenn á miðju keppnis-
tímabili, gert þeim tilboð, fengið þá út í
Meðal þeirra sem erlend félög hafa nú
augastað á er hlnn ungi leikmaður Vík-
ingsliðsins, Arnór Guðjohnsen, sem er
annar frá vinstri á mynd þessari úr leik
Víkings og Þróttar.
nokkra daga til reynslu o.s. frv. Þetta
hlýtur að hafa áhrif á leiki þessara
manna, hvort sem þeir fara út í þetta
eða ekki.
Það vita það líka allir sem eitthvað
eru inni í knattspyrnumálum að er-
lendu félögunum er óheimilt að hefja
viðræður við leikmenn á meðan á
keppnistímabilinu stendur, nema með
samþykki viðkomandi félags og KSÍ,
og þetta vita raunar engir betur en hinir
erlendu kaupmenn og KSÍ, en báðir
aðilar láta eins og þeir viti ekki neitt,
eða málið komi þeim ekkert við.
Auðvitað á KSÍ strax að setja sig inn í
hvert einasta svona mál sein kemur upp
og sjá um að farið sé að lögum, en ekki
láta sem ekkert sé, þangað til félögin
beinlínis fara fram á það að KSÍ vakni
og geri eitthvað. Meira að segja lands-
liðsþjálfarinn frá í fyrra og árið þar á
undan kemur hingað upp, setur sig að
sjálfsögðu í samband við sína blaða-
menn til þess að fá nú viðtal með mynd,
Ingi
Björn
skrifar
þar sem hann getur einu sinni enn sagt
frá því hvað'hann elski ísland og hvað
hann sakni nú íslands og hvað hann
finni þakklætið fyrir frammistöðu hans
með islenzka landsliðið streyma frá
þjóðinni — þakklætið fyrir hvað hann
hafi lyft íslenzkri knattspyrnu og allt
það. En hvert var erindi Tony Knapp til
íslands nú síðast? Hann kom hingað til
þess að eyða sumarfríinu sínu í að reyna
ITOSHIBA
SM-2700
Stereo-samstæöan
Verð kr. 168.900.-
Stórfallegt
hljómflutningstæki
á einstaklega góðu verði
Allt í einu tæki:
Stereo-útvarp, cassettusegulband,
plötuspilari og 2 stórir hátalarar.
Magnarinn er 28 wött. Tveir hátalarar
eru í hvorum kassa. Stór renndur 28 sm
plötudiskur. Útvarpið er með langbylgju,
miöbylgju og FM Stereo. CR 0 Selektor.
Komiö og skoðið þetta stórfallega tæki
og sannfærist um að SM 2700
Toshiba-tækiö er ekki aöeins afburða
stílhreint í útliti heldur líka hljómgott.
SM 2700 gefur yöur mest fyrir peningana.
Háþróaöur magnari, byggöur á
reynslu Toshiba í geimvísindum.
EINAR FARESTVEIT 4, CO. HF
BERGSTAÐASTRÆTI I0A - SlMI I6995
Utsölustaðir: Akranes: Bjarg h.f.
Borgarnes: Kaupf. Borgf.
Bolungarvík: Verzl. E.G.
Hvammstangi: Verzl. S.P.
Sauöárkróki: Kaupf. Skagf.
Akureyri: Vöruhús KEA.
Hljómver h f.
Húsavík: Kaupf. Þing.
Eyiisstööum: Kaupf. Héraösb.
Olafsfiröi: Verzl. Valberg.
Siglufiröi: Gestur Fanndal.
Hvolsvelli: Kaupf. Rangæinga.
Vestmannaeyjum: Kjarni s.f.
Keflavík: Stapafell h.f.
15