Íþróttablaðið - 01.07.1978, Side 19
sundlaugina, sem þeir telja einhverja þá
beztu á landinu og alla aðstöðu mjög til
fyrirmyndar. Áhorfendur eru að jafnaði
mjög margir á sundmótum hér, og hafa að-
komumenn haft við orð, að vel mætti
Reykjavík við una, ef slíkur fjöldi sæist þar
á áhorfendapöllunum.
Otisvæði til íþróttaiðkana eru á tveimur
stöðum, sem kallast mega meiriháttar.
Malarvöllurinn í Löngulág, er nokkuð
kominn til ára sinna. Hann er í stytzta lagi
sem knattspyrnuvöllur af náttúrulegum að-
stæðum, en allgóð hlaupabraut umhverfis
hann og sæmileg stökk- og kastaðstaða.
Raunar má segja, að lakast sé búið að
frjálsum íþróttum utanhúss hér, þar sem
þær hafa algerlega horfið í skuggann fyrir
vinsældum knattspyrnunnar. Þótt ýmsir
annmarkar séu á malarvellinum, svo sem
slæmur jarðvegur og pollamyndanir miklar
í vatnsveðrum, er staðsetning hans góð, þar
sem hann er í næsta nágrenni við báða
skólana og því stutt að fara frá þeim stöðum
til íþróttaiðkana þar.
Grasvöllurinn við Hástein er höfuðæf-
ingasvæði knattspyrnumanna ásamt því að
vera aðalkeppnisvöllur eldri flokkanna.
Mikið er búið að vinna við völlinn eftir gos
til að bæta hann, en staðsetning hans er
sömuleiðis ekki sem ákjósanlegust, niðri í
laut, þannig að vatn vill nokkuð safnast
fyrir í vætutíð. Þá hefur völlurinn oft komið
illa undan vetri og verið lengi að ná sér.
Mjög hefur verið unnið að því og sérstak-
lega síðastliðið ár, að fegra umhverfi vall-
arins enda er það hið snyrtilegasta, áhorf-
endasvæði í grasi gróinni brekku norðan
vallarins undir háu bergi. Þá eru bílastæði
allgóð við völlinn. Völlurinn er ekki afgirt-
ur, og væri enda erfitt um vik. Hefur þetta
stundum skapað nokkur vandkvæði við
innheimtu aðgangseyris, en sjaldnast komið
að sök. Höfuðókosturinn við völlinn er, að
íþróttamiðstöð Vestmannaeyinga. Eitt
glæsilegasta íþróttahús á fslandi, og þar er
hin ákjósanlegasta aðstaða til flestra
íþróttaiðkana. Hefur tilkoma hússins aukið
mjög íþróttaáhuga í Vestmannaeyjum og
einnig aukið verulega á fjölbreytni íþrótta-
starfsins. Myndin hér að neðan er af ungum
badmintonmönnum í Eyjum, en mikill og
vaxandi áhugi er á þeirri íþróttagrein þar.
19