Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 21
þar er engin innanhúsaðstaða. Hús það, er
var við völlinn og þjónaði sem búningsað-
staða og salerni eyðilagðist í gosinu og
annað hefur ekki verið reist í staðinn. Not-
ast hefur verið við aðstöðuna í íþróttamið-
stöðinni, en þangað er um 400 metra vega-
lengd og því skiljanlega nokkur óþægindi af
því. Þá þurfa áhorfendur að létta vel á sér
heima, áður en þeir koma á völlinn, þar sem
salernis- og hreinlætisaðstaða er engin.
Svo sem gefur að skilja í jafn fjölmennu
bæjarfélagi og hér, eru æði mörg íþrótta-
svæði önnur dreifð um bæinn, — önnur en
þau sem hér eru talin, án þess að þau verði
talin til íþróttamannvirkja. íþróttaáhugi er
hér geysimikill og því margur grasblettur-
inn tekinn undir æfingar af áhugasömu
ungu fólki. Þá er rétt að minnast á þann
stað, sem sennilega er hvað elstur af
íþróttamannvirkjum hér og á sér vart hlið-
stæðu í öðrum byggðarlögum. Það er
„sprangan'* fræga undir Skipahellum, þar
sem Eyjamenn hafa áratugum saman æft
sína elstu íþrótt, bjargsig. Ekki er þar um
skipulagða kennslu eða æfingar að ræða,
heldur nema nýliðar þar af öðrum reyndari.
Sprang er holl og góð íþrótt og hættulaus, ef
rétt er að farið. Æskulýðsfulltrúi bæjarins
hefur eftirlit með að kaðlar séu traustir og
því ekki slysahætta vegna þess.
2. spurning: Svo sem greina má af fram-
ansögðu er öll aðstaða fyrir hendi til lög-
boðinnar íþróttakennslu á grunnskólastig-
inu og hefur svo verið frá því að íþrótta-
miðstöðin tók til starfa.
3. spuming: Sem svar við þessari spurn-
ingu er einnig vísað til svars við fyrstu
spurningu, þar sem framkvæmdir við
íþróttamiðstöðina hafa haft algeran for-
gang, ásamt þó með nauðsynlegu viðhaldi
og endurbótum á öðru, svo sem grasvellin-
um við Hástein.
4. spurning: Sem fyrr segir er bæjarfélag-
ið vel á vegi statt með íþróttamannvirki. Það
sem hæst ber, í framtíðinni er nýr grasvöllur
í dalverpi vestan Helgafells. Eru fram-
kvæmdir þegar hafnar við hann og áætlað
að halda þeim áfram í sumar, eftir því sem
fjárhagur leyfir. Mun hann einkum eiga að
þjóna sem æfingavöllur en-sömuleiðis sem
keppnisvöllur, þegar í þá framkvæmd
verður ráðist að hækka upp grasvöllinn við
Hástein, eins og til stendur í framtíðinni.
Mun búningsaðstaða verða við þann völl,
en væntanlega smá í sniðum, þar sem hér er
verið með æfingavöll í huga.
Þá er ógetið golfvallarins í Herjólfsdal,
sem er níu holu völlur. Völlurinn fór mjög
illa í gosinu en hefur nú verið aukinn og
endurbættur. Var lagt fram fé frá bæjarsjóði
til þeirra framkvæmda en félagar í Golf-
klúbbnum hafa unnið af mikilli eljusemi að
uppbyggingunni. Þeir hafa einnig komið sér
upp golfskála við völlinn, nýju og vönduðu
húsi, þannig að aðstaða til golfiðkana hefur
aldrei verið betri í Eyjum en nú.
21