Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 32

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Qupperneq 32
Jón Sigurðsson, Keflvíkingur hvílir lúin bein milli lota í borðtenniskeppninni, en þar bar hann sigur úr býtum. Ragnhildur Sigurðardóttir í borðtennis- keppninni. í úrslitum tapaði hún fyrir Guðrúnu Einarsdóttur úr Kópavogi. með Í.B.Í. á móti Haukum í fótbolta nú í eftirmiðdaginn. En ég kem aftur í kvöld, því á morgun á ég að keppa í þrístökki og boðhlaupi.“ Það má með sanni segja, að greinar þær sem keppt er í á Landsmóti séu bæði margar og fjölbreytilegar. Þar er meðal annars keppt í starfsíþróttum, svo sem dráttavélarakstri, línubeitingu, jurtagreiningu og hestadómum. Á svæði hestamanna austarlega í bænum voru margir knapar í glæsileg- um reiðfötum samankomnir með fag- urbyggða gæðinga sína. Steingrímur Viktorsson skýrði fyrir okkur í hverju keppnin þar væri fólgin. — Fyrst fer hér fram töltkeppni og er keppt samkvæmt reglum Evrópu- sambandsins. Þá eru líkamsbygging, hreyfingar og skapferli hestsins dæmd. Síðan er keppt í fjórgangi og að lokum er keppt í fimmgangi. Það er í rauninni annar liðurinn, limaburður, hreyfingar og skapferli hestsins sem fellur undir starfsíþróttir. Dráttarvélaaksturskeppnin var í því fólgin að aka dráttarvél með aftaní- vagni ákveðna braut, í gegnum þröng hlið og hindranir ýmsar. Það var virki- lega skemmtilegt að fylgjast með því hversu færir og öruggir ökumennirnir voru. í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi þeirra Selfyssinga fóru meðal annars fram keppnir í blaki og körfuknattleik. í þann mund sem okkur bar að voru U.M.S.K.-menn að taka U.Í.A.-menn í karphúsið í blaki svo að um munaði. Við spurðum formann U.Í.A., Her- mann Nielsson, sem leikstýrði liði U.Í.A., hverju sætti að svo illa gengi. — Við teflum ekki fram því liði sem upphaflega var ætlunin að tefla fram. Það voru Seyðfirðingar sem ætluðu að senda hingað blaklið sem átti að keppa í nafni U.Í.A., en fyrir einni viku var það ljóst, að þeir kæmust ekki af ýms- um ástæðum. Því var gripið til þess ráðs að safna saman í lið, víðs vegar að á Austfjörðum. Fyrsta samæfing liðsins var svo í gær, þannig að það væri í rauninni ósanngjarnt að ætlast til mikils árangurs af okkar mönnum í þessari grein. 30 manna sýningarhópur frá Dan- mörku sýnir á mótinu sem gestir. Þau sýna fimleika og þjóðdansa og hafa þau æft í 2 ár, beinlínis með það fyrir aug- 16.LANDSMÓT UMFÍ SELFOSSI 21-23. 3ÚLÍ 1978 um að heimsækja ísland. Félag þeirra, sem er innan dönsku ungmennafélags- hreyfingarinnar heitir O.A.G. eða Odense Amts Gymnastikforening. Danirnir kváðust mjög ánægðir með veru sína hér og sögðust síst skilja hvað íslendingar væru alltaf að kvarta undan veðrinu. Þeir sögðust aðeins hafa eitt kvörtunarefni, en það væri verðlagið. Kváðu þau það enga hemju að þurfa að borga 200 kr. fyrir eitt glas af kók. Þau vildu ekki tefja lengur, því þau höfðu fengið loforð fyrir því að fá að skreppa á hestbak og voru þau full til- hlökkunar þar sem þau skunduðu í átt til svæðis hestamanna. w; 1 numLmhcíhiH% ' j' Knattspyrnukeppni landsmótsins bauð upp á skemmtileg tilþrif, en henni lauk með sigri UMSK, en það lið varskipað leikmönnum 1. deildarliðs Breiðabliks úr Kópavogi. 32

x

Íþróttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.