Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 48

Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 48
í minningu tveggja heiðursfélaga ÍSÍ Ármann Dalmannsson Við fráfall Ármanns Dalmannssonar er kvaddur einn þeirra mætu manna, sem strax á æskuárum tileinkuðu sér hugsjónir og framfarahug aldamótaár- anna, þar sem félagshyggja ásamt and- legu og líkamlegu atgervi skipuðu önd- vegi. Þessum dyggðum var Ármann Dalmannsson trúr til hinstu stundar. Hann sýndi í verki inntak orðanna „ræktun lands og lýðs“, því Ármann vann alla tíð að skógræktar- og öðrum ræktunarmálum ásamt því að stunda íþróttakennslu og sinna margvíslegum félagsmálum, sem horfðu til heilla fyrir íþrótta- og ungmennastarfið. Hér verður ekki rakið langt og heilladrjúgt starf Ármanns Dalmanns- sonar í þágu íþróttanna, enda hefur það verið gert af öðrum kunnugri aðilum. En árið 1964 veitti Í.S.Í. Ármanni æðstu viðurkenningu sína með því að velja hann heiðursfélaga sambandsins. Um leið og Í.S.Í. kveður hinn látna heiðursfélaga og þakkar mikið og gott framlag til eflingar íþróttastarfinu í landi okkar, sendum við eftirlifandi eiginkonu hans og öðrum ástvinum hugheilar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ármanns Dal- mannssonar. Jens Guðbjörnsson Með andláti Jens Guðbjörnssonar bókbandsmeistara, fyrrv. formanns Glímufélagsins Ármann, er horfinn af sjónarsviðinu einn af dugmestu for- ystumönnum íþróttahreyfingarinnar á liðnum áratugum. Fyrst og fremst haslaði Jens sér völl hjá Glímufélaginu Ármanni, þar sem hann af óvenjulegri röggsemi og myndarskap gegndi formennsku sam- fleytt í 40 ár. Þeir sem best þekkja til framvindu íþróttamálanna hér á landi á tímabilinu 1930 til 1960, munu naum- ast geta hugsað til þeirra tíma án þess að inn í myndina komi nafn Jens Guð- björnssonar. Vegna starfa hans á þessu tímabili og raunar miklu lengur, verður nafn hans skráð varanlegu letri í sögu íþróttanna í landi okkar. Mörgum öðrum trúnaðarstörfum gegndi Jens Guðbjörnsson sem ekki verða tíunduð hér nema að litlu leyti. En þess má geta, að hann var kosinn í Olympíunefnd íslands 1945 og átti þar sæti til loka ársins 1971, að hann varð að hætta vegna veikinda. Hann var oft í fararstjórn íþróttamanna á Olympíu- leikunum og aðalfararstjóri á Olym- píuleikunum í Helsingfors 1952. Einnig gegndi hann fararstjórn i fjölda annarra ferða íslenzkra íþróttamanna innan- lands og utan. Þegar íslenskar getraunir hófu starfsemi sína fyrst hér á landi, var Jens framkvæmdastjóri þeirra 1951—1956. í sérhverju starfi sem Jens Guð- björnsson tók að sér, var hann jafnan í fylkingarbrjósti. Harðfylgi hans, einurð og reglusemi voru með þeim hætti, að ekki fór framhjá neinum. Það er mikið lán fyrir sérhvern félagsskap að fá slík- an mann til forystustarfa. íþróttasamband íslands veitti Jens Guðbjörnssyni æðstu viðurkenningu sem það hefur yfir að ráða með því að kjósa hann heiðursfélaga sambandsins árið 1953. Með virðingu og þökk kveðjum við nú einn okkar ágætustu félaga, sem ætíð var heill og óskiptur þegar mest lá við. Eftirlifandi eiginkonu hans, frú Þór- veigu S. Axfjörð, sem af skörungsskap stóð við hlið manns síns í umsvifamiklu félagsmálastarfi, svo og öðrum að- standendum, sendum við samúðar- kveðju. Blessuð veri minning Jens Guðbjörnssonar. Blessuð veri minning Jens Guð- björnssonar. 48

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.