Íþróttablaðið - 01.07.1978, Page 53
ari, lék á 303 höggum, en Magnús lék á
304 höggum. Þetta er mjög góður ár-
angur, þar sem „röffin“ voru mjög erfið
á vellinum, — ef menn fóru út af
brautum voru þeir komnir í mikla erf-
iðleika.
Hjá Golfklúbbi Akureyrar varð
Björgvin Þorsteinsson meistari. Hann
lék á 313 höggum. Ég hef ekki séð Jað-
arsvöllinn í sumar, þannig að ég veit
ekki í hvernig ásigkomulagi hann var,
en telja má þetta ágætan árangur.
Bróðir Björgvins, Viðar Þorsteinsson,
varð í öðru sæti með 321 högg, þannig
að hann virðist vera að draga nokkuð á
bróður sinn.
Meistari Golfklúbbs Vestmannaeyja
varð Haraldur Júlíusson, sem kallaður
var gullskalli, meðan hann var í knatt-
spyrnunni. Hann lék á 307 höggum. f
öðru sæti varð Gylfi Garðarsson, ungur
og efnilegur strákur, lék á 310 höggum,
þannig að keppnin varð mjög hörð.
Völlurinn í Vestmannaeyjum er nú
orðinn mjög skemmtilegur, einn
skemmtilegasti völlur sem ég hef spilað
á. Hann er að jafna sig eftir gosið, svo-
lítið vikur á brautunum ennþá, en flat-
irnar að verða góðar. Vestmannaeying-
ar hafa sýnt mikinn dugnað við lagfær-
ingar á vellinum og þeir hafa einnig
byggt myndarlegan skála við hann,
þannig að aðstaðan þarna er orðin bæði
góð og skemmtileg.
Hjá Nesklúbbnum var einnig hörku-
keppni milli Tómasar Holtons og
klúbbmeistarans frá í fyrra, Jóns Hauks
Guðlaugssonar og voru þeir jafnir eftir
72 holur á 308 högg og þurfti að leika
bráðabana um titilinn. Sigraði þá
Tómas á annarri braut. Þetta er frábær
árangur hjá Tómasi, sem ekki hefur
leikið mikið síðustu ár. Er Tómas einn í
hópi þeirra sem ég kalla gömlu ljónin
— golfmenn sem geta komið hvenær
sem er og bitið rækilega frá sér.
Eins og ég hef sagt verður árangur í
þessum mótum að teljast góður, en
auðvitað gekk á ýmsu hjá keppendum,
jafnvel þeim sem beztum árangri náðu
og sigruðu í mótunum. í S.R.-mótinu
lék t.d. Björgvin Þorsteinsson níundu
holu sem er par 5 á 10 höggum, í fs-
landsmóti unglinga lék Geir Svansson
fyrstu holu sem er par 5 á 11 höggum og
sjálfur fór ég þriðju holuna á Leynis-
vellinum á níu höggum. Þetta sýnir að
þótt við fáum góð skor þá verðum við
oft fyrir skellum, og því er ekki ástæða
fyrir þá sem eru að byrja að leika golf
að örvænta þótt þeir leiki holur á 9-10
höggum.
Verðlaun í golfmótum. Ég hef orðið
var við það að mönnum hefur orðið
nokkuð tíðrætt um verðlaun í golfmót-
um og þá sérstaklega vegna þess að í
móti um daginn var boðið upp á bíl í
verðlaun ef einhverjum heppnaðist að
fara ákveðna holu í höggi. Þetta var
fyrst og fremst gert í þeim tilgangi að
vekja athygli á golfiþróttinni og var
meira tryggingarspursmál í sambandi
við bílinn, en bein útgjöld í peningum.
Þarna voru líka sólarlandaferðir og
heimilistæki í verðlaun, en þar var fyrst
og fremst um framlög frá ýmsum fyrir-
tækjum sem velviljuð eru golfíþróttinni
að ræða. Ég held að þessi keppni hafi
verið góð auglýsing fyrir golfíþróttina
og vakið gífurlega athygli. Þarna áttu
nær allir keppendur jafna möguleika
vegna forgjafarfyrirkomulags. T.d. léku
þarna saman Björgvin Þorsteinsson og
Geir Svansson og léku þeir eins vel og
unnt var, en enduðu eigi að síður í
fimmta sæti. Það var mikil spenna þeg-
ar leikið var á 17. braut í þessu móti og
greinilegt að menn vönduðu sig sem
bezt þeir máttu. Sá sem var næstur því
að slá holu í höggi var Kristinn Berg-
þórsson sem var 27 sentimetra frá.
Annars er það algjör tilviljun ef menn
slá holu í höggi, og Kristinn hefði getað
slegið þúsund högg í viðbót án þess að
komast nær.
Hola í höggi. Flesta golfmenn
dreymir um það að slá holu í höggi, en
margir eru þeir sem ljúka jafnvel löng-
um keppnis- og æfingaferli án þess að
sá draumur rætist. Einhvers staðar hef
ég lesið að möguleikarnir á holu í höggi
séu 1 á móti 37 eða 38 þúsund, hjá
góðum golfleikara.
Eins og ég sagði þá geta menn verið í
golfi áratugum saman án þess að verða
fyrir því happi að ná holu í höggi, en
svo getur einhver sem er nýbyrjaður
komið og fengið slíkt happahögg. Ég
vona að karl faðir minn, Ólafur Bjarki,
fyrirgefi mér það þótt ég segi hér frá því
að eitt sinn ákvað hann að nú væri tími
til kominn að hann næði holu í höggi.
Hann tók sig því til og fór upp á golfvöll
snemma morguns og stóð þar síðan
lengi dags og sló og sló, sennilega þús-
und bolta eða meira á sömu holuna.
Margir fóru nálægt, í bakkann, eða á
holubrúnina, en enginn rataði rétta
leið. Þá var hann búinn að leika golf í
10 ár og síðan munu liðin 26 ár og enn
hefur hann ekki náð því að leika holu í
höggi!
Svo eru aðrir sem hafa farið þrisvar
holu í höggi og man ég þar t.d. eftir
þeim Kjartani L. Pálssyni og Gunn-
laugi Ragnarssyni og einn kylfingur
Ólafur Skúlason, fór einu sinni tvisvar
holu í höggi í sama hring. Það var á
sjöttu holu á velli GR sem er par þrjú
hola og á tíundu holu, sem er par 4.
sjávar-
fréttir
Fjórum sinnum
útbreiddara
en nokkuS annaS
blaS á sviSi
sjávarútvegs.
fónaöarblatóö
kemur út annan
hvern mánuð
Eignist blaðið
frá byrjun
Áskrifarsími
82300
53