Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 9
Norðurlandamótið
sem gleymdist!
f nóvember fór fram hér á
landi Norðurlandamót í hand-
knattleik pilta yngri en 20 ára.
íslensku piltarnir stóðu sig
mæta vel, urðu í þriðja sæti á
mótinu. Handboltasérfræðing-
ar töldu þó að miðað við
styrkleika hinna liðanna hefði
það íslenska átt að gera betur,
en lélegur undirbúningur hefði
komið í veg fyrir það. Liðið
æfði lítið eða ekkert saman
fyrr en síðustu tvær vikumar
fyrir mótið og því var samæf-
ingin nánast engin. Hvers
vegna var sumarið ekki nýtt til
æfinga fyrir þennan hóp? Get-
ur verið að HSÍ-forystan hafi
hreinlega gleymt að það þyrfti
að velja og undirbúa umrædd-
an aldurshóp fyrir Norður-
landamót, sem þar að auki var
haldið á íslandi? NM er í
sjálfu sér ekkert stórmót, en
það var líka hugsað sem æfing
fyrir heimsmeistarakeppni
pilta 21 árs og yngri sem fram
fer í Finnlandi í desember
1983. Ætlast er til þess að ís-
lenska liðið standi sig vel á því
stórmóti minnugir frábærra
frammistöðu sama aldurshóps
í Danmörku fyrir tveimur ár-
um. Það er því lágmarkskrafa
að forystan muni eftir þeim
verkefnum sem fyrir liggja og
undirbúi þau eins vel og kostur
er.
Oli Ben. aftur í
landsliðsslaainn?
I landsleikjum í handknattleik á dögunum kom í Ijós
að markvarslan kemur til með að verða höfuðverkur í
B-keppninni í Sviss. Aðeins einn markvörður virðist
vera öruggur í landsliðið, Stjörnumaðurinn Brynjar
Kvaran, en hann er þó enn betri félagsleikmaður en
landsliðsmaður. Heyrst hefur að Hilmar Björnsson
landsliðsþjálfari hafi mikinn hug á því að fá Ólaf Bene-
diktsson til þess að herða á sér við æfingar með von um
að hann nái sínu „gamla, góða formi,“ og er þá ekki að
efa að Ólafur væri sjálfsagður maður í íslenska lands-
liðið. Ólafur hefur sýnt góða leiki með Þróttarliðinu í
vetur, þá sjaldan að vörn liðsins hefur verið þokkaleg.
I viðtali sem erlent íþrótta-
tímarit átti nýlega við holl-
enska knattspyrnumanninn
Simon Tahamata sem leikur
með belgíska liðinu Standard
Liege um jæssar mundir er
hann spurður um ástæður fyrir
velgengni Standard að undan-
fömu. Segir hann að það hafi
breytt miklu fyrir félagið að fá
Arie Haan til liðs við sig, en
Haan tók við stöðu Ásgeirs
Sigurvinssonar hjá Standard.
,v\sgeir Sigurvinsson var frá-
bær leikmaður,“ segir Taham-
ata í viðtalinu,“ en aðalgalli
hans sem stjórnanda og lykil-
mans á vellinum var það að
hann lét aldrei heyra í sér —
sagði aldrei orð á meðan á
leiknum stóð.“
9