Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 13

Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 13
íslenska liðið lék annars léttan og nokkuð góðan handbolta þegar best iét, en oft réðu leik- menn ekki við hraðann og mistök í sóknarleiknum urðu óeðlilega mörg. Markvarslan var yfirleitt góð hjá Gísla Felix Bjarnasyni úr KR (FH-ingurinn Haraldur Ragnarsson fékk minni að spreyta sig), en vamarleikurinn var slakur í flestum leikjanna. Nokkrir leikmenn íslenska liðs- ins áttu einn stjörnuleik og svo aðra lakari, en enginn „briller- aði“ í gegnum allt mótið. Þannig skoraði Hermann Bjömsson (Fram) 10 mörk í fyrsta leiknum gegn Norðmönnum, en hafði svo hægt um sig í markaskoruninni eftir það, en Willum Þórsson (KR) gerði 9 mörk loksins þegar hann fékk að leika eitthvað með að ráði (í síðasta leiknum gegn Svíum). Óskar Þorsteinsson (Víking) og Guðmundur Albertsson (KR) voru einnig mjög atkvæðamiklir og eru greinilega menn framtíð- arinnar í handknattleiknum. Þá er ónefndur fyrirliði liðsins, Þorgils Óttar Mathiesen (FH), en það mæddi geysimikið á honum í vörn og sókn, og var hann að öðrum ólöstuðum besti maður íslenska liðsins. Reyndar átti Óttar mikla möguleika á að verða valinn mesti sóknarmaður móts- ins, en hann átti „down-leik“ síðasta keppnisdaginn, og missti af þeirri viðurkenningu. Að ári fara fram í Finnlandi úrslit í heimsmeistarakeppni unglinga yngri en 21 árs og tekur ísland þátt í keppninni. Líkureru á að íslenska liðið verð að stórum hluta skipað þeim leikmönnum sem léku á NM og því sneri íþróttablaðið sér til nokkurra að- ila sem tengdir eru liðinu og for- vitnaðist um álit þeirra á frammistöðu íslenska liðsins á NM svo og um skoðanir þeirra á HM ’83. Þeir hafa rækilega komið við sögu landsliðsins fslenska unglingalandsliðið sem náði þeim frækiiega árangri að verða í 7. sæti íheimsmeistarakeppni 21 árs og yngri í Portúgal árið 1979. Fremri röð frá vinstri: Birgir Jóhannsson (hættur í handknattleik), Alfreð Gíslason (landsliðsmaður í KR), Sigmar Þröstur (besti leikmaður Eyja-Þórs), Brynjar Kvaran (landsliðsmaður úr Stjörnunni), Guðmundur Magnússon (fyrirliði FH-liðsins), Andrés Kristjánsson (leikmaður með sænsku liði). Efri röð: Jóhann ingi Gunnarsson (þjálfar v-þýska 1. deildar liðið Kiel), Friðrik Þorbjörnsson (landsliðsmaður íKR), Sigurður Gunnarsson (landsliðsmaður í Víkingi), Atli Hilmars- son (leikur með þýsku liði), Guðmundur Þórðarson (einn besti leikmaður ,,spútnikliðsins‘‘ Störnunnar), Sigurður Sveinsson (leikur með þýsku liði og íslenska landsliðinu), Kristján Arason (landsliðsmaður úr FH), Jóhannes Sæmundsson aðstoðarþjálfari Jóhanns Inga og Halldór Matthíasson sjúkraþjálfari. 13

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.