Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 15
Ekki nógu líkamlega
sterkir
Viðar Símonarson var fenginn
til að þjálfa íslenska liðið og
stjóma því á NM og kvaðst hann
undrandi yfir því hve liðið hefði
fengið lítinn tíma til undirbún-
ings.
„Það er furðulegt að sumarið
skyldi ekki vera notað til samæf-
inga fyrir hópinn. Nú var verið að
reyna að búa til lið á viku-10
dögum og slíkt getur ekki gefið
árangur. Miðað við undirbún-
inginn má segja að liðið hafi
staðið sig ágætlega, alla vega
bjóst ég ekki við meiru. Það er
svo annað mál að við áttum að
vinna Finna og ná a.m.k. öðru
stiginu úr viðureigninni við Dani
og þá hefði árangurinn verið
góður. Slæmt var að hafa enga
örugga vítaskyttu, en við misnot-
uðum 11 eða 12 víti á mótinu.
Svo vantar í liðið betri skotmenn,
en þar var einkennandi fyrir
þetta mót að það vantaði alveg
afgerandi leikmenn, skyttur, í öll
liðin. Þau voru jafnari en oftast
áður, en voru í mismikilli leikæf-
ingu. Mér fannst sænska liðið
best, og þar var einmitt í leiknum
gegn Svíum sem íslenska liðið
náði sér ekki á strik. Einkum var
síðari hálfleikurinn lélegur og
Viðar Símonarson.
það var það eina sem ég var
virkilega óánægður með.
Fyrir HM á næsta ári þarf að
lagfæra ýmislegt í leik íslenska
liðsins, en mikið atriði er að leik-
mennirnir styrki skrokk sinn bet-
ur. Þeir eru ekki nógu líkamlega
sterkir og er það skrýtið miðað
við þann mikla tíma sem þeir
eyða og hafa eytt í æfingar. Það
virðist sem þessi þáttur þjálfun-
arinnar sé vanræktur hjá félög-
unum, en mín skoðun er sú að
líkamleg uppbygging leikmanna
þurfti að hefjast fyrr en verið
hefur hér á landi.“
Bestu leik-
mennirnir
Besti markvörðurinn:
Espen Karlsen, Noregi.
Besti vamarmaðurinn:
Lars Ahlert, Svíþjóð.
Besti sóknarmaðurinn:
Michael Fenger, Danmörku.
Einn íslensku unglingaliðsmannanna kominn í skotfærí eftir hraðaupp-
hlaup.
MARKAHÆSTIR A NM
Mikeal Kællman, Finnlandi 22 mörk
Jan Rundhovde, Noregi 17 -
Lars Ahlert, Svíþjóð 17 -
Jonas Sandberg, Svíþjóð 16 -
Svein Fossheim, Noregi 16 -
15