Íþróttablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 19
Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari
„Það þarf að halda vel
utan um þennan efnilega
Beynsluleysið var
iungt á metunum
ijá íslenska liðinu
hóp
„Ástæðan fyrir þvð að NM
unglinga var jafnara núna en áð-
ur, er sú að lakari þjóðunum
hefur farið meira fram en hinum
sterkari. Finnar eru t.d. ekki
lengur með lið sem auðvelt
er að sigra enda
hafa þeir lagt mikla áherslu á
Hilmar Björnsson landsliðsþjálfari
þennan hóp sinn, og þá væntan-
lega með það í huga að FÍM
unglinga fer fram á næsta ári í
Finnlandi. Flestir finnsku leik-
mannanna hafa að undanförnu
fengið leiki með A-landsliðinu,
til að fá meiri leikæfingu í stór-
leikjum. Þessu er eiginlega öfugt
farið með íslenska liðið, sem er
upp til hópa í lítilli leikæfingu og
nánast engri samæfingu. Fæstir
leikmannanna leika lykilhlutverk
hjá liðum sínum svo það er eðli-
legt að reynsluleysi hái þeim
nokkuð. Það kemur m.a. fram í
lélegri nýtingu dauðafæra, en
það varð íslenska liðinu að falli í
mótinu, ásamt slökum varnar-
leik, en það er fyrirbrigði sem
seint ætlar að vera hægt að upp-
ræta í íslenskum handknattleik.
Flins vegar fer ekki á milli mála
að íslenska hópinn skipa efni-
legir leikmenn sem þarf að halda
vel utan um fram að HM á næsta
ári.“
Lokastaðan á NM
Danmörk
Svíþjóð
ísland
Noregur
Finnland
4 4 0 0 82-71 8
4 3 0 1 92-85 6
4 1 1 2 80-88 3
4 1 0 3 80-81 2
4 0 1 3 73-82 1
Hefja þarf undirbúning timanlega
Það er ekki miklu hægt að
bæta við það sem fram hefur
komið hjá þjálfurunum Viðari og
Hilmari, svo og Þorgils Óttari
fyrirliða. Ljóst er að HSÍ þarf
strax að marka stefnuna í sam-
bandi við undirbúning pilta-
landsliðsins fyrir heimsmeistara-
keppnina i Finnlandi. Ráða þarf
þjálfara sem fyrst og hafa hann
með í ráðum þegar undirbúning-
urinn er skipulagður. Af samtöl-
um við ýmsa leikmenn íslenska
landsliðshópsins má ráða að þeir
eru mjög ánægðir með Viðar
Símonarson sem þjálfara, og vilja
að hann verði fenginn til að und-
irbúa liðið og stjórna því á HM.
Nú ríður á að nota tímann vel,
því íslenska piltalandsliðið er nú
langt frá því að vera gott, en er
skipað efnilegum og áhugasöm-
um leikmönnum sem eru tilbúnir
til að leggja hart að sér til að
verða betri. Og það sem þeir
þurfa er tími, samæfing og þjálf-
ari.
19