Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 22
Iþróttahúsið í Kefla-
vík skipti sköpum
— segir Sigurður Valgeirsson, liðstjóri Í.B.K.
Sigurður Valgeirsson á bekknum hjá Keflvíkingum — ekkert antor
hress á svipinn, enda gekk ÍBK ekki vel ílelknum á móti Val þar sem
myndin var tekin.
Sigurður Valgeirsson er „alt-
muligmand“ þeirra Keflvíkinga í
körfuboltanum, gjaldkeri
deildarinnar, liðsstjóri úrvals-
deildarliðsins o.fl. o.fl. Það kom
því ekki til greina að ræða við
annan en hann til að afla frétta af
körfuboltamálum Í.B.K.
íþr.bl.: Hvernig stendur á þeim
öru framförum sem átt hafa sér
stað íkeflvískum körfuknattleik?
„Það er náttúrulega tilkoma
íþróttahússins í Keflavík sem er
aðalatriðið. Áður en það kom
fóru okkar bestu leikmenn til
UMFN, þar sem aðstaðan var
miklu betri, en nú höldurn við
okkar mönnum. Þetta er þriðja
árið sem íþróttahúsið er í notkun
og hefur það algjörlega skiþt
sköpum fyrir okkur. Það er
ekki bara það að nú eigum við lið
í úrvalsdeildinni, heldur hefur
áranguryngri flokka Í.B.K. verið
mjög góður að undanförnu. í
fyrra urðum við t.d. íslands-
meistarar í 2. flokki og 5. flokki,
auk þess sem 4. flokkur og 2.
flokkur urðu bikarmeistarar. Við
höfum alltaf lagt mikla áherslu á
yngri flokkana og nú er það farið
að skila sér.“
íþr.bl.: Að hverju var stefnt í
upphafi tímabilsins, og hefur
markmiðssetningin eitthvað
breyst eftir velgengnina það sem
af er vetrar?
„Eins og nýliðum sæmir sett-
um við okkur það markmið að
halda sæti okkar í deildinni. Það
hversu vel hefurgengið hingað til
hefur ekki síst komið okkur sjálf-
um á óvart. Við erum með ungt
og efnilegt lið, meðalaldurinn er
22—23 ár, en það vantar tilfinn-
anlega meiri breidd. Stefnan er
því enn sú að halda sætinu og ég
er bjartsýnn á að það takist.“
íþr.bl.: Hver er þáttur Tim
Higgins í frammistöðu liðsins og
hvaða áhrif hefur brottför hans?
„Tim Higgins var geysisterkur
leikmaður sem gerði mjög góða
hluti þann tíma sem hann var hjá
okkur. Eftir hina skyndilegu og
mjög svo óvæntu brottför hans
urðum við að finna nýjan Kana
til að þjálfa liðið og leika með
því. Sá sem við fengum, Brad
Miley, er mjög fær þjálfari en það
tekur tíma fyrir hann að aðlagast
liðinu og öfugt. Liðið hefur misst
hraða eftir brottför Higgins, sem
hirti mjög fráköst og stjórnaði
hraðaupphlaupum. En við erum
mjög ánægðir með Miley sem
þjálfara, bæði fyrir úrvals-
deildarliðið og yngri flokkana og
væntum okkur mikils af sam-
starfinu við hann.“
fþr.bl.: Hvað með framtíðar-
horfur ykkar Í.B.K. manna í
körfunni?
Framhald á bls. 68
22