Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 29

Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 29
Arie Haan — lykilleikmaðurinn hjá Standard Liege og þykir hann frábser stjórnandi á leikvelli. þeim er ekkert vel við Flæmingj- ana sem tilheyra Standard, en ef farið er í búningsklefann hjá Standard eru yfirgnæfandi líkur á því að þar heyrist töluð flæmska. Mun engin launung á því að frönskumælandi Belgíu- menn líta heldur niður á Flæm- ingjana. Það var því engin sérstök ánægja ríkjandi í herbúðum Anderlecht eftir síðasta keppnis- tímabil þegar Standard Liege varð meistari og Anderlecht varð í öðru sæti, auk þess sem Stand- ard Liege komst í undanúrslit í Evrópubikarkeppni bikarhafa. Það varð enn til að auka á ólg- una í herbúðum Anderlecht að mennirnir tveir á bak við sigur- göngu Standard Liege voru ein- mitt gamlir Anderlecht-menn, þeir Raymond Goethals og Arie Haan. Goethals var um tíma að- alþjálfari Anderlecht og Arie Haan var um árabil fyrirliði liðs- ins, m.a. er það vann meistaratit- ilinn 1980-1981. Haan varorðinn hálfgerður kóngur í riki sínu hjá Anderlecht og það lá í loftinu að margir leikmenn liðsins og for- ráðamenn þess vildu gjarnan losna við hann. Þeir vissu þó sem var að áhangendur liðsins myndu ekki taka því þegjandi ef hann yrði seldur. Þeir fundu því aðra leið til þess að losa sig við hann. Anderlecht gekk einfaldlega ekki að launakröfum hans þegar end- urnýja skyldi samninginn við hann og gerði honum tilboð sem Haan svaraði með kláru nei-i. Þar með varð ljóst, eins og forráðamenn félagsins sögðu, að Haan vildi ekki vera lengur hjá félaginu. Forráðamenn Anderlecht voru líka vissir um að Arie Haan væri búinn að lifa sitt fegursta sem knattspyrnumaður. Hann var orðinn 30 ára og þeir reiknuðu dæmið þannig að aðalandstæð- ingar þeirra í Belgíu myndu ekki sækjast eftir svo gömlum leik- manni. Það kom því sem köld vatnsgusa framan í þá þegar Haan samdi við Standard Liege. Það þurfti reyndar ekki að koma svo mikið á óvart þótt Standard legði áherslu á að fá Haan til liðs við félagíð. Goethals var vel kunnugur Arie Haan frá því að hann þjálfaði Anderlecht og hann fór ekkert í feiur með álit sitt á honum. Að auki vantaði Goethals nauðsynlega leikmann til þess að fylla skarðið sem Ás- geir skyldi eftir sig — leikmann sem gat stjórnað liðinu og drifið það áfram með krafti sínum, eins og Ásgeir hafði gert. Anderlecht keypti ííka Vanden Stock framkvæmda- stjóri Anderlecht sá að hann hafði Ieikið af sér, en reyndi að vinna aftur upp styrk og álit með því að kaupa leikmenn fyrir röskar 25 milljónir króna. Fyrst skal frægan telja Pétur Pétursson sem keyptur var frá Feyenoord, en einnig keypti Stock þá Erwin Vandenbergh frá Lierse og Alex Czerniatynski frá Antwerpen. Allir þessir þrír leikmenn voru sóknarmenn og áttu þeir að sjá um að skora mörkin fyrir liðið. En allt gekk á afturfótunum hjá stjóranum og eftir að Anderlecht tapaði fyrir Standard Liege á heimavelli var ávkeðið að láta Stock taka pokann. sinn og Paul van Himst, fyrrum stórstjarna hjá félaginu, var beðinn að taka við stjórnvelinum. Blanda fleiri sér í baráttuna Allir búast við því að baráttan um meistaratitilinn í Belgíu í ár standi áfram milli Standard Liege og Anderlecht. En fleiri iið kunna að blanda sér í baráttuna Framhald á bls. 68 29

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.