Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 30
Félögin í Reykjavík
eiga að koma sér upp
eigin knattspyrnuvöllum
Laugardalsvöllurinn á að vera fyrir stórleiki
í sumar bárust af því
fréttir, að til stæði að Knatt-
spyrnufélagið Valur léki sinn
fyrsta leik í íslandsmótinu í 1.
deild, á eigin velli. Ekki varð þó
af því af ýmsum ástæðum, og
sögðu forráðamenn Vals að ekki
yrði af því fyrr en næsta sumar,
að Valur léki sinn fyrsta leik í
fyrstu deildinni á velli félagsins
að Hlíðarenda. — En hvort sem
þessi fyrsti leikur íslensks félags-
liðs á eigin velli verður leikinn í
ár eða næsta ár, þá eróneitanlega
um að ræða tímamótaviðburð í
íslenskri íþróttasögu, þar sem
öll félög hafa hingað til orðið að
leika á völlum í eigu hinna ýmsu
sveitarfélaga.íþróttablaðinufékþví
forvitni á að frétta nánar af stöðu
þessara mála hjá Val, og blaða-
maður hitti Pétur Sveinbjamar-
son formann félagsins að máli
fyrir nokkrum dögum, þar sem
vallarmál almennt og margt
fleira bar á góma, auk þess sem
snýr að Val sérstaklega.
30