Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 31

Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 31
\ I Ef fétögin lékju heimaleiki sína á eigin völlum myndi átroðslan á Laugardalsvöllinn minnka og hann verða betri. Fyrsti heima- leikurinn næsta sumar________________________ „Það er ekki hægt að segja til um það í dag, hvenær Valur getur leikið alla sína heimaleiki á eig- inn ve!li“ sagði Pétur, „en mark- mið okkar er að leika einhvern hluta heimaleikja okkar á Hlið- arenda næsta sumar. Völlurinn sem slíkur er nánast tilbúinn, en ýmislegt annað er þó eftir. Það „slys“ varð nefnilega með þenn- an völl, að hann datt út af opin- berum fjárveitingum áður en lokið hafði verið við hann, og það hefur valdið okkur erfiðleikum. Nauðsynlegum framkvæmdum er enn ekki lokið, það vantar til dæmis skjól eða létt þak yfir áhorfendastæðin, hreinlætisað- stöðu, bílastæði, og minniháttar veitingasöluaðstöðu. Þetta er sá lágmarks aðbúnaður sem við teljum að þurfi að vera við völl- inn til að sómasamlegt sé að bjóða leikmönnum Vals, keppi- nautum okkar í íþróttinni og áhorfendum uppá. Þetta þarf að vera til staðar til að við geturn boðið upp á völlinn, þetta eru þær lágmarkskröfur sem gera verður til að þar geti farið fram leikir í 1. deildinni. — En þar sem fjárveitingin var stöðvuð áður en völlurinn var tilbúinn, hefur orð- ið dráttur á því að við tækjum völlinn í notkun. Fjárveitingin var meira að segja stöðvuð það fljótt, að við gátum ekki gert áhorfendastæðin nægilega stór til að taka við þeim fjölda áhorf- enda sem horfði á Val leika á þeim tíma, svo ef aðsókn hjá okkur verður eins og hún var, þá eru stæðin of lítil.“ — Er það alveg óumdeilt í þínum huga og ykkar Vals- manna, að æskilegt sé að félögin eigi sína velli? Fer ekki vel um ykkur inni í Laugardal? „Það er ekkert vafamál að æskilegt er að félögin eigi sína eigin velli og geti leikið flesta sína heimaleiki þar. Úti um allt land eru til staðar vellir í plássum, sem mörg hver telja ekki nema eitt til fimm þúsund manns, eða þá að unnið er að því að koma völlum upp. Hér búa í Reykjavík meira en áttatíu þúsund manns, og því ætti okkur ekki að verða skota- skuld úr því að byggja hér fleiri félagsvelli. Starfsemi íþróttafé- laganna er óumdeilanlega mjög nytsöm og holl æskulýðsstarf- semi, og það hefur ómetanleg áhrif fyrir félögin ef þau geta leikið á sínum eigin völlum. Það myndar samkennd og auðveldar starfið í viðkomandi hverfum, eykur áhuga fólks á öllum aldri og verður til þess að yngra fólk sækir í íþróttafélögin í auknum mæli. Það má gera ráð fyrir því að fjögur til fimm félög leiki í 1. deildinni frá Reykjavík árlega, og það er fráleitt fyrirkomulag að 31

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.