Íþróttablaðið - 01.12.1982, Qupperneq 32
Nútíð og framtíð
íslenskrar knattspyrnu
YOURJ SEDOV, höfundur
þessarar bókar er íslenskum
knattspyrnumönnum og
knattspyrnuunnendum að
góðu kunnur. Hann hefur um
árabil þjálfað knattspyrnu-
rnenn Víkings með þeim
árangri, að þeir urðu Islands-
meistarar 1981, Reykjavíkur-
og íslandsmeistarar 1982, eru
nú eí'stir í 1. deild. þegar þessi
bók kemur út. Bók þesi fjallar
um þjálfun knattspyrnu-
manna, bæði einstaklinga og
liðsheildar. Knattspyrnu-
menn hafa oft kvartað yfir
því að slík leiðbeiningabók
væri ekki til á íslensku, en nú
hefur ræst úr því.
Youri Sedov er hámenntaður
knattspyrnuþjálfari, hefur
gengið í gegnum bestu
þjálfun og fræðslu sem slíkir
menn geta fengið. Hann setur
hér fram leiðbeiningar sem
ættu að koma öllum
knattspyrnumönnum að
haldi.
íslensk
knattspyrna ’82
Jafntefli íslenska landsliðsins
gegn HM-liði Englendinga,
jafnteflið við Holland og
tapið óvænta fyrir Möltu á
Sikiley. Frásagnir af öllum
öðrum landsleikjum íslands í
sumar; drengja, unglinga og
kvenna.
Baráttan um Heims-
bikarinn Spánn ’82
„Starf mitt á knattspyrnu-
vellinum er að standa mig vel
og skora mörk“, segir marka-
kóngur HM-keppninnar,
Paolo Rossi. í formála segir
hann ítarlega frá sjálfum sér
og ítalska landsliðinu í loka-
keppninni.
I bókinn BARÁTTAN UM
HEIMSBIKARINN er skýrt
frá gangi mála í öllum
leikjum lokakeppninnar, 52
að tölu. Auk þess eru greinar
um þau lið, sem komu á
óvart, auk um 200 frétta- og
fróðleikspunkta.
Eftir þessum bókum
hefur verið beðid
l 1 j. a x x x x j