Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 33

Íþróttablaðið - 01.12.1982, Blaðsíða 33
allir leikir þessara liða fari fram á einum og sama staðnum. Æski- legast væri fyrir alla aðila að fé- lögin ættu sína velli, og þar yrði leikið alla jafna. Stærri leikir, svo sem bikarúrslitaleikir, úrslita- leikir í íslandsmóti, Evr- ópuleikir og landsleikir færu svo fram á stórum leikvangi í eigu borgarinnar. Þetta er það sem gerst hefur erlendis, og þetta hlýtur að verða hér innan tíðar, og á alls ekki að vera neitt ágreiningsmál milli borgaryfir- valda og íþróttafélaganna, heldur er um að ræða sameiginlegt hagsmunamál. Við eigum að líta á Laugardalsvöllinn sem okkar stóra leikvang, sem þjóðarleik- vang, og við eigum að vera stolt af að eiga góðan leikvang þar. En um leið er félögunum nauðsyn á að koma upp sínum eigin völlum, félagsleg og fjárhagsleg nauð- syn.“ Ekki litlar upphæðir greiddar í leigu — Fjárhagsleg, hver er ókost- urinn fjárhagslega við að leika í Laugardal? „Félögin greiða óhemju mikla vallarleigu til borgarinnar, og hún stendur þeim verulega fyrir þrifum. Vallarleiga nemur nú 17% af tekjum, en þá er ekki allt talið, því við verðum að greiða 3% til K.R.R. og önnur 3% til Í.B.R., auk dómaragjalda og fleiri hluta. Það eru því ekki litlar fjárhæðir sem þarf að greiða fyrir 90 mínútna afnot af völlunum, og þegar stórleikir fara fram, oft með mikilli áhættu félaganna, matar borgin krókinn. Ég get nefnt sem dæmi, að fyrir Manchester United-leikinn í sumar, greiddum við Vals- menn 109 þúsund krónur í vall- arleigu. Það er dágóður skilding- ur, og oft greiða íþróttafélögin mun meira til hins opinbera með þessum hætti en nemur styrkjum til starfseminnar. Það hýtur vissulega að vera mönnum um- hugsunarefni, og raunar vafa- samt að tala um styrki í þessu sambandi.“ Fjármagni til íþróttanna er vel varið — En styrkur af opinberu fé til íþróttafélaganna, á hann ör- ugglega rétt á sér? „Já. Það er ekki umdeilt að fólk vill að fé sé varið til æsku- lýðsmála, og íþróttafélögin eru og verða óhjákvæmilega mjög snar þáttur í slíkri starfsemi. Það er viðurkennd staðreynd hér og erlendis. En það er eins og þetta vefjist fyrir sumum, og benda má á að ekki er til nein opinber stefna í því hvernig eigi að nýta skólaíþróttahús eða íþrótta- mannvirki í neinu samhengi, ekki hvernig eigi að tengja saman al- menningsíþróttir og skipulagða starfsemi íþróttafélaganna. Það er ekki vitað hvemig best má nota mannvirki sem til eru og svo framvegis. Hér þarf að verða breyting á, það er ef til vill brýn- asta verkefnið í þessu nú. í þessu efni get ég ekki stillt mig um að nefna að Æskulýðsráð borgarinnar hefur á undanförn- um árum haldið uppi eins konar samkeppni við íþróttafélögin um æskulýðsstarfið, án þess að tengja þessa hluti saman og ná því besta út úr því öllu. Fróðlegt væri hins vegar að sjá þróunina í því fjár- magni sem Æskulýðsráð hefur fengið frá því það var sett á lagg- irnar, og svo hvað það hefur aukist er íþróttafélögin fá í sinn hlut.“ — En Valur hefur væntanlega mótað sína stefnu til næstu ára. Hvað er framundan hjá ykkur í uppbyggingu á félagssvæðinu? Uppbygging að Hlíðarenda „Á Valssvæðinu að Hlíðar- enda hyggjumst við byggja þannig upp, að þar verði tvö íþróttahús, tveir grasvellir, tveir malarvellir, útihandknattleiks- völlur, stjórnar- og skrifstofuhús- næði, félagsheimili og áhaldahús. Annar grasvöllurinn er þegar að verða til eins og við höfum rætt um, og rætt er um að hinn verði lagður gervigrasi. Annar malar- völlurinn er þegar til staðar svo og íþróttahúsin og svo er hitt í byggingu. Útihandknattleiks- völlurinn verðurfyriraustan nýja íþróttahúsið. Félagsheimilið á svo að tengja íþróttahúsin. Nú- verandi íbúðarhús verður gert upp og verður notað fyrir stjórn og skrifstofuhald. Loks verður svo núverandi félagsheimili, sem er eins og allir vita gamalt fjós og hlaða, nýtt fyrir áhalda- og við- gerðaaðstöðu fyrir svæðið. Með þessu móti er núverandi félags- svæði Vals fullnýtt.“ — Núverandi?Erþaðekkiallt svæði Vals, er félagið ekki þegar búið að fylla út í allt umráða- svæði sitt og vel það? „Nei, svo er ekki, því að við fengum frá borginni þá bestu af- mælisgjöf í fyrra, sem við gátum hugsað okkur. Þá samþykkti borgarráð að úthluta Val svæðið fyrir vestan núverandi félags- svæði, það er að segja þar sem nú er gamli vegurinn út á Reykja- víkurflugvöll og núverandi flug- braut er, og allt að lóð Lands- spítalans. Þetta er svæði sem gæti rúmað stóran leikvang með öll- um þjónustumannvirkjum, eða þá smærri æfingavelli. En með þessu má segja að Valur sé kom- inn með félagssvæði er tryggi veru Vals á Hlíðarenda um ókomin ár. — Stór leikvangur Vals á þessu viðbótarsvæði er svo fjarlægari hugmynd, sem ekki 33
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.