Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 35
Oft hefur orðið að grípa til gamla, góða Melavallarins þegar allt annað
hefur þrotið.
liggur á að taka ákvörðun um
nú.“
— Á síðustu árum hefur orðið
mikil breyting á rekstri flestra
þeirra félaga er í 1. deild leika.
Erlendir þjálfarar, stóraukið fjár-
magn, æfingar eins og hjá at-
vinnumannaliðum. Er hægt að
halda áfram á þessari braut, eða
hafa forráðamenn félaganna ef
til vill ekki verið nægilega hug-
myndaríkir við að finna nýjar
leiðir. Gætu félögin til dæmis
ekki rekið fyrirtæki í hagnaðar-
skyni, til að standa undir rekstri
félaganna?
Þurfum sífellt
að leita
nýrra leiða
„Auðvitað þurfum við sífellt
að leita nýrra leiða. Miklar
breytingar urðu hér á fyrir
nokkrum árum eins og þú minn-
ist á, ef til vill hafa þær verið of
örar. En þá verður að hafa í huga
að kyrrstaða hafði verið of lengi,
og róttækra breytinga var þörf.
— Atvinnumennska hér á landi
er ekki raunhæfur möguleiki í
nálægri framtíð, alls ekki. Áhorf-
endafjöldinn er of lítill, og félög-
in beijast þegar í bökkum fjár-
hagslega. Staðreynd er að betl-
starfsemi félaganna er þegar
komin út fyrir öll velsæmismörk,
langt út fyrir það sem hægt er að
ætlast til af félagsmönnum og
stuðningsmönnum félagsins.
Áfram verður þó að treysta á
velvilja þessa fólks.
— En hvað varðar þau peninga-
mál sem þú ert að nefna, þá
verðum við að muna að það er
afar stutt síðan mátti ræða þessi
mál yfirleitt. Stutt er síðan ís-
lensku áhugamannaliðin vildu
ekkert vita af auglýsingum á
búningumeðasöluáleikmönnum,
en fengu kannski fótbolta fyrir
leikmann er hann hélt til erlendra
liða. Nú er þetta breytt. Ef til vill
kemur sá dagur að íþróttafélögin
fara að standa í atvinnurekstri til
að fjármagna starfsemi sína, líkt
og mörg félagslið gera erlendis,
en ýmislegt þarf þó að athuga í
þessu sambandi áður. — Gæti
það til dæmis þýtt að við þyrftum
að breyta félögunum í hlutafé-
lög. Allt þetta þarf vissulega að
hugleiða, en það má ekki flana að
neinu.“
— En höfum við gengið til
góðs í þessu efni, hafa breyting-
arnar á síðustu árum verið til
góðs?
„Um það má deila, en annað
hvort verðum við að finna nýjar
leiðir og hljóta betri fyrirgreiðslu
hins opinbera, eða þá að það
Frh. á bls. 6 8
Félög úti a' landi hafa sum hver yfir knattspyrnuvelli að ráða. Þeir eru vitanlega misjafnir að gæðum, en sumir
ágætir— betri en þeir sem ,,stórliðin“ búa við.
35