Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 40
Lið Nettlestedt keppnistímabilið 1982-1983. Bjarni annar frá hægri í fremstu röð. Sigurður Sveinsson
lengst til vinstri í efstu röð.
landsleikjum. Lang markahæstur
er Geir Hallsteinsson með 534
rnörk, þá koma Axel Axelsson
með 376 (90 leikir), Viðar Símon-
arson með 321 (103 leikir) og Ól-
afur H. Jónsson með 312 stykki.
Landsliðið og
B-keppnin
Nú hefur Bjarni Guðmunds-
son mesta reynslu af þeim leik-
mönnunr sem í dag skipa lands-
liðshópinn sem verið er að und-
irbúa fyrir B-keppnina sem fram
fer í Hollandi í febrúar.
Hvað finnst honum t.d. sam-
anborið við landslið fyrri ára og
hverja telur hann möguleika ís-
lands í B-Kepnninni.
Það vantar „forystu-
sauð“
Áberandi við landsliðs-
hópinn íslenska er hversu jafnir
leikmennirnir eru. Það eru fáir ef
nokkrir sem skara virkilega fram
úr. Þessu fylgja bæði kostir og
gallar, en verst er að það vantar
afgerandi forystumanni í hópinn,
t.d. mann eins og Ólaf H. Jónsson
sem getur drifið meðspilarana
upp þegar illa gengur og sýnir
gott fordæmi með baráttu sinni
og leikgleði. Þetta er ekki síður
bagalegt nú þegar minna er urn
áberandi stórskyttur en áður var.
Það á sér þó sínar orsakir sem
ekki má gleyma, en það eru
framfarir þær sem orðið hafa
nánast alls staðar í heiminunr í
varnarleik og nrarkvörslu. Stað-
reyndin er sú að það er orðið
miklu erfiðara fyrir góða skot-
menn að „brillera“ en var fyrir
5-10 árum síðan, hvað þá fyrr.
Annað atriði sem er því miður í
ólagi, en á vonandi eftir að lagast
fyrir B-keppnina er markvarslan.
Hún er mun lakari nú en fyrir
nokkrum árum þegar Óli Ben.
var upp á sitt besta og varði eins
og berserkur, og svo stóð Kristján
Sigmundsson sig oft mjög vel.“
Óraunhæfar kröfur
og ótímabæra gagnrýni
Þrátt fyrir að ýmislegt sé að hjá
íslenska landsliðinu um þessar
rnundir, ýmsir agnúar sem verður
að lagfæra fyrir B-keppnina, er
ég ákaflega hissa á þeirri gagn-
rýni sem kom fram eftir leikina
gegn V-Þjóðverjum og Frökkum
á dögunum. Við hverju býst fólk
og til hvers ætlast það? Það var
eins og við hefðum tapað leikjun-
um gegn Frökkunum en ekki
unnið þá. Auðvitað á krítik rétt á
sér, en hún verður að vera sann-
gjörn og rétt tímasett. Ef við tök-
um síðustu „landsleikjaperíódu“
sem dæmi þá hefði verið eðlilegra
að taka saman eftir þá leiki gagn-
rýni á leikskipulag, innáskipting-
40