Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 41
Eftirhraðaupphlaup stekkurBjarnilangtin' íteiginn og þaðþarfvarla að
spyrja að þvíhvar knötturinn hafnaði.
ar, uppbygginu liðsins eða annað
sem mönnum þótti í ólagi, í stað
þess að „rakka“ niður framrni-
stöðu liðsins á milli leikjanna og
draga úr aðsókn að þeim leikjum
sem á eftir komu.
Vandamálin innan handknatt-
leiksins eru bæði fjárhagslegs
eðlis og handboltalegs. Þau síð-
arnefndu leysum við ekki á ein-
um degi eða tveimur og fjármálin
batna ekki nema við fáum fólk í
Höllina þegar landsleikir eru. En
ég vil taka það fram að margt af
því sem fram kom í fjölmiðlum
um þessa leiki var alveg rétt, en
„krítik“ verður að vera jákvæð og
umfram allt koma á réttum
tíma.
„Verðum meðal 6 efstu
í B-keppninni.“
Ég er ánægður yfir því að
landsliðinu gangi mátulega illa
um þessar mundir. Það er betra
að vandamálin komi fram núna
en þegar nær dregur að B-
keppninni eða jafnvel þegar hún
er hafin. Nú höfum við tíma og
tækifæri til að lagfæra það sem
að er, þ.e.a.s. það sem hægt er að
laga. Undirbúningurinn fyrir
þessa B-keppni virðist ætla að
verða meiri og betri en fyrir þá
síðustu. Á móti kemur að keppn-
in í febrúar verður mun erfiðari
en undanfarin ár, þar sem liðin
sem taka þátt i keppninni eru með
alsterkasta móti og möguleikar
okkar þar af leiðandi minni en
síðast. Þrátt fyrir það er ég sæmi-
lega bjartsýnn og spái hópnum
góðu gengi og einhverju af 6 efstu
sætunum í keppninni.“
— Það er ekki að efa að Bjarni
Guðmundsson mun geta allt sem
í hans valdi stendur til að svo megi
verða og íþróttablaðið sendir
honum og hinum landsliðsköpp-
unum baráttukveðjur í lokaundir-
búninginn með ósk um að liðið
„smelli saman“ á réttum tíma.
Laugardaga og sunnudaga
til kl. 16.
41