Íþróttablaðið - 01.12.1982, Page 43
Bestí
Morten Frost Hansen
Tíu
bestu
karlar
1. Morten Frosti (Danmörku)
2. P. Padukone (Indónesíu)
3. Luan Jin (Kína)
4. M. Sidek (Malasíu)
5. Thomas Kihlström (Svíþjóð)
6. I. Sugiarto (Indónesíu)
7. He Shangguan (Kína)
8. Liem Swie King (Indónesíu)
9. R. Stevens (Englandi)
10. S. Baddeley (Englandi)
badminton
Hver er besti badminton-
maður í heimi? Nú má ætla
að erfitt sé að svara slíkri
spumingu eða leggja á það
nákvæma mælikvarða.
Heimsmeistaramótin ættu
reyndar að segja mikið, en
eins og allir vita er það þó
ekki endilega víst að heims-
meistarinn sé bestur. AI-
þjóða badmintonsambandið
færir nákvæma skrá yfir öll
meiriháttar mót og fær síð-
an badmintonfólkið stig
eftir frammistöðu sinni í
mótunum.
Badmintonfólkinu er síðan
raðað niður eftir styrkleika og
samkvæmt nýjasta lista sam-
bandsins er Daninn Morten
Frost talinn besti badminton-
leikari í heimi. Kemur það raun-
ar ekki á óvart þar sem Frost
hefur verið næstum ósigrandi á
öllum, meiriháttar mótum, og er
nú sagður betri en nokkru sinni
fyrr. Þykir tækni hans og þá ekki
síður úthald og seigla með ólík-
indum.
Það er hins vegar kínverska
stúlkan Li Lingwei sem talin er
snjallasta babmintonkona í
heimi — hefur flest stig. I öðru
sæti er landa hennar Wu Jiangiu
og kínverskar stúlkur eru einnig í
3., 4. og 5. sæti. Hin góðkunna
Lena Köppen frá Danmörku
verður að láta sér nægja sjötta
sætið, enda hefur Köppen
greinilega ekki verið eins spræk
að undanförnu og oft áður, og
sjálf segist hún vera mjög farin að
lýjast og ætlar sér að hætta áður
en langt um líður.
Samkvæmt stigalista Al-
þjóða-badmintonssambandsins
eru eftirtalin bestu badminton-
leikarar í heimi:
Li Lingwei
Tíu
bestu
konur
1. Li Lingwei (Kína)
2. Wu Jiangiu (Kína)
3. Zhang Ailing (Kína)
4. Wu Dixi (Kína)
5. Xu Rong (Kína)
6. Lene Köppen (Danmörku)
7. Fumiko Tohkairin (Japan)
8. Chen Ruizhen (Kína)
9. Zheng Yuli (Kína)
10. Sumiko Kitada (Japan)
Lie Ing Ivana (Indónesíu)
43