Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 52

Íþróttablaðið - 01.12.1982, Side 52
gefur þennan hæfileika eða hvort hann er meðfæddur. Skipulag og fjármögnun Ríkið greiðir laun starfsfólks- ins og leggur til ákveðna rekstr- arupphæð árlega. Síðastliðið ár, 1981, var sú upphæð 400 þúsund krónur sem varla dugir til að halda við bókasafninu. Starfið á Fysiologen er því háð framlögum frá Medisinska forskningsraadet sem sækja þarf um og verður á þessu ári um 1 milljón sænskra króna. Þá lagði herinn til 80 þús- un krónur vegna rannsókna í hans þágu og Arbetarskydds- fonder lagði fram 40 þúsund krónur. Vandinn er að fá meira fjár- magn til starfsins en nú eru stór iðnaðarfyrirtæki og trygginga- fyrirtæki farin að styðja ákveðnar rannsóknir með fjárframlögum. Þá koma til sérstakar fjárveiting- ar til kaupa á nýjurn tækjum en þau tæki sem stofnunin á nú þegar hafa kostað tugi milljóna króna. Ýmsiraðilar sækja um styrki til Idrættens Forskningsraad og afla sér leyfis til að.rannsaka ákveðna þætti tengda íþróttum. Er um að ræða læknisfræði, lífeðilsfræði, sálarfræði o.fl. Forskningsraadet hefur tvo starfsmenn sem kenna að hluta til við G.I.H. og veita forstöðu R.Fs. rannsóknarstofu í Bosön. Þeir eiga að fylgjast með þeim rannsóknum sem tengjast íþróttum og gefa út árlega skýrslu með kynningu á þeirn og hvar hægt er að fá skýrslur og niður- stöður hverrar rannsóknar. Þá hafa stærstu sérsamböndin starfandi vísindamenn t.d. lækna eða líffræðinga. Sænska frjáls- íþróttasambandiðhefurt.d.mann í hálfu starfi sem rannsakar og gerir tilraunir með þjálfunarað- ferðir fyrir afreksfólk. Frjáls- íþróttasambandið hefur á launa- skrá hjá sér 25 fasta starfsmenn svo dæmi sé nefnt um umsvif eins sérsambands í Svíþjóð. Á sjúkrahúsum landsins eru stofnanir fyrir „kliniska fysiologi“ og þar hafa ýmsar að- ferðir sem notaðar eru við rann- sóknir á íþróttamönnum verið fundnar upp. Þannig að viða- miklar líffræðilegar rannsóknir eiga sér stað um allt land sem koma íþróttahreyfingunni til góða vegna þess að hún hefur tengsli við þær og fylgist með því sem gert er á þessu sviði. Niðurstöður rannsókna birtast í skýrslum og tímaritum og dreifast oft út um allan heim. Þannig skiptast lönd og þjóðir á upplýsingum en þjóðir sem ekk- ert gera til að fylgjast með í þess- um efnum dragast að sjálfsögðu aftur úr. Þá má geta þess að oft eru í dagblöðum, útvarpi og sjónvarpi viðtöl við rannsóknar- menn um tilraunir þeirra og oft eru þeir spurðir álits þegar skyld mál, tengd íþróttum koma upp, og verða að umræðuefni. Lokaorð P.O. Aastrand hefur ritað margar bækur og bæklinga sem út hafa kornið á mörgum tungu- málum. Á árunum eftir 1950 TÍZKUBLAÐ kvatti hann mikið til þess að gerðar yrðu skokkbrautir og skíðagöngubrautir. Hann var með fyrstu mönnum til að vekja athygli á sambandi hjarta- og æðasjúkdóma og hreyfingar- leysis, Aastrand hvatti fólk til að stunda reglubundna líkamsþjálf- un og hugsa um matarræði sitt og borða hollan mat. Hann hefur í rúm þrjátíu ár stuðlað að því að fleiri og fleiri Svíar stunda nú líkamsrækt til að viðhalda og auka andlegt og líkamlegt heil- brigði. Aastrand sjálfur er mikill náttúruskoðari og fuglaskoðari og til gamans má geta þess að í hléum á milli fyrirlestra grípur hann gjarnan í pianóið og leikur fyrir stúdentana í íþróttakenn- araskólanum. Þeir sem áhuga hafa á upplýs- ingum um rannsóknir í Svíþjóð og hvar unnt er að panta skýrsl- urnar og niðurstöðurnar geta snúið sér til fræðslufulltrúa íþróttasambands íslands. Hermann Níelsson íþróttakennari Mmur moo 52

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.