Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 55
— sund — sund — sund — sund — sund — sund — sund —
tíma og unnið til verðlauna á
Ólympíuleikum eða á heims-
meistaramótum.
Ef nokkur þeirra ætti skilið að
bera titilinn „sunddrottningin“
þá er það Dawn Fraser, sprett-
sundkonan fræga, sem sigraði í
100 metra skriðsundi á þremur
Ólympíuleikum í röð. Nokkuð
sem enginn annar sundmaður
eða kona hefur leikið eftir fyrr
eða síðar. Dawn Fraser varð
Ólympíumeistari í 100 metra
skriðsundi í fyrsta sinn á leikun-
um í Melboume 1956, synti þá á
1:02,0 mín. Fjórum árum síðar, í
Róm, varði hún Ólympíutitil sinn
og synti þá á 1:01,2 mín.
Dawn varð fyrst kvenna til
þess að synda 100 metra skrið-
sund á skemmri tíma en 60 sek-
úndum. Það gerði hún 27. októ-
ber 1962 í Melboume er hún setti
heimsmet og synti á 59,9 sek. Á
Ólympíuleikunum í Tokyo 1964
var Dawn Fraser 27 ára að aldri
en henni tókst að verja titil sinn í
100 metra skriðsundi. Tími
hennar þá var 59,5 sek. og var
hún 4/10 úr sekúndu á undan
Sheron Stouder frá Bandaríkj-
unum sem synti á 59,9 sek. og
varð því önnur kvenna til þess að
synda 100 metra skriðsund á
skemmri tíma en 60 sekúndum.
Fraser bætti heimsmetið í 100
metra skriðsundi alls 11 sinnum.
Fyrsta heimsmetið sem hún setti í
þessari grein var 1:04,5 mín. og
það setti hún 21. febrúar 1956. í
síðasta skiptið sem Fraser bætti
heimsmetið, 29. febrúar 1964 í
Sidney,syntihúná58,9sekúndum,
og voru því rúm átta ár milli þess
að hún setti sitt fyrsta heimsmet
til hins síðasta. Hafði Dawn þá
átt heimsmetið frá 1. desember
1956 án þess að nokkurri annarri
stúlku tækist að komast þar á
milli.
Núverandi heimsmet í 100
metra skriðsundi á Barbara
Krause frá Austur—Þýskalandi
og er það 54,79 sek. sett á
Ólympíuleikunum í Moskvu
sumarið 1980.
Alls setti Fraser 27 heimsmet á
ýmsum skriðsundsvegalengdum
á 10 ára sundferli sínum.
Shane Gould, ein af stúlkun-
um í „gullkvartettinum“, var án
efa gullstúlka Ólympíuleikanna í
Múnchen 1972. Þar sigraði
hún í þremur sundgreinum og
setti heimsmet í þeim öllum, auk
þess sem hún vann til einna silf-
urverðlauna og einna bronsverð-
launa.
Shane hóf sigurgönguna á
Ólympíuleikunum 1972 með því
að sigra í 200 metra fjórsundi
(2:23,07 mín.), sigraði því næst
léttilega í 400 metra skriðsundi
(4:19,04 mín.) og síðan í 100
metra skriðsundi, eftir að hafa
leitt sundið alla leiðina (2:03,56
mín.). Shane setti alls 11 heims-
met á sundferli sínum. Á átta
mánaða tímabili frá lokum ársins
1971 og fram á mitt ár 1972 átti
hún heimsmetin í öllum vega-
lengdum í skriðsundi, sem
heimsmet eru staðfest í, þ.e. í
100m., 200m„ 400m„ 800m„ og
1500 metra sundum — afrek sem
enginn annar sundmaður eða
kona hefur náð.
Hinar tvær stúlkumar í „gull-
kvartettinum“ eru Tracey
Wickham og Michelle Ford.
Segja má að þær séu fulltrúar
núverandi keppnissundfólks í
Ástralíu.
Tracey Wickham var ein af
stjömum heimsmeistaramótsins í
Vestur—Berlín 1978. Þar sigraði
hún í 400 og 800 metra skrið-
sundi. Það var einmitt árið 1978
sem Tracey setti heimsmetin í
báðum ofangreindum vega-
lengdum. Metið í 400 metra
skriðsundi var 4:06,28 mín. og í
800 metra skriðsundi 8:24,62
mín. og stendur það heimsmet
enn þann dag í dag.
Michelle Ford sigraði í 800
metra skriðsundi á Ólympíuleik-
unum í Moskvu 1980. Þar synti
hún á 8:28,90 mín„ sem er þriðji
besti tími sem náðst hefur í
greininni frá upphafi. Tracey
Wickham kaus hins vegar að taka
ekki þátt í leikunum í Moskvu.
Héldu því margir að gullverð-
launin mundu falla í hlut aust-
ur-þýskrar stúlku, sem var mjög
sigursæl á leikunum. En svo fór
nú ekki. Michelle sá um að færa
gullverðlaunin heim til Ástralíu
og rauf þar með nær óslitna sig-
urgöngu austur-þýsku stúlkn-
anna á leikunum í Moskvu.
Þessar fjórar fræknu sundkon-
ur hafa vissulega veitt sund-
áhugafólki í Ástralíu og um allan
heim ánægju og gleði með afrek-
um sínum. Víst er að afrek þeirra
munu örva og hvetja næstu kyn-
slóðir sundfólks í Ástralíu til
dáða og enn betri afreka.
Áskriftar
símar
íþrótta
bldðsins
82300
82302
55