Íþróttablaðið - 01.12.1982, Síða 68
íþróttahúsið —
Frh. af bls. 22
„Það er ekki hægt annað en að
vera bjartsýnn á framtíðina.
Í.B.K. á eins og fram hefur kom-
ið. mjög góða yngri flokka, t.d.
eigum við 6 leikmenn í drengja-
landsliði (15—16 ára) og þrjá í
unglingalandsliðinu (undir 21
árs). Eftir 3—4 ár ættum við að
geta sett stefnuna á toppinn ef
svo heldur sem horfir. Nú, það er
mikill áhugi fyrir körfubolta í
Keflavík, eins og víðar á Suður-
nesjunum, og höfum við 5—700
áhorfendur á heimaleikjum okk-
ar, meðan algengur áhorfenda-
fjöldi í Reykjavík er 100—200
manns. Við i Í.B.K. lítum því
björtum augum til framtíðarinn-
ar, og ætlum okkur að vera meðal
bestu körfuknattleiksliða íslands
á næstu árum a.m.k.“
Belgísk knattspyrna-
Frh. af bls. 29
og þá sennilega helst liðið hans
Arnórs Guðjohnsens, Lokeren.
Töluverðar mannabreytingar
hafa orðið hjá Lokeren frá síð-
asta keppnistímabili. Pólverjarn-
ir Wlodzimerz Lubanski og
Grezegorz Lato fóru báðir frá
félaginu, sá síðarnefndi alla leið
til Mexikó þar sem hann leikur
með 1. deildarfélagi. En Lokeren
þykir eigi að síður mjög gott lið,
og dugnaði og baráttugleði leik-
manna er við brugðið. Arnór
Guðjhonsen er tvímælalaust
orðinn einn af lykilmönnum í
liðinu, — leikmaður sem forráða-
menn félagsins binda vonir við
og setja raunar traust sitt á.
SK Beveren getur líka blandað
sér í baráttuna jafnvel þótt félag-
ið hafi orðið að sjá á bak einum
besta leikmanni sínum, lands-
liðsmarkverðinum Jean Marie
Pfaff sem seldur var til Bayern
Múnchen og miðvallarleik-
manninum Wilfried van Moer,
sem leikur nú með og þjálfar St.
Truiden. Þá er líka mögulegt að
Royal Antwerpen verði með í
baráttunni í vetur a.m.k. ef Pétur
Pétursson verður jafnoft á skot-
skónum og hann var þegar hann
var upp á sitt besta hjá Leyen-
oord. Já, og það er heldur alls
ekki hægt að afskrifa það að fé-
lagið hans Lárusar Guðmunds-
sonar, Waterschei blandi sér í
baráttuna, þótt mönnum beri
raunar saman um að það standi
bæði Anderlecht og Standard
Liege töluvert að baki.
Pétur Sveinbjarnar—
Frh. af bls. 35
verður að hverfa aftur um all-
mörg ár, til sama fyrirkomulags
og þá var. Ég held þó að það sé
óraunhæfur möguleiki. Við get-
um að vísu stórminnkað allt um-
fang íþróttafélaganna, en ekki án
þess að það bitni á íþróttalegum
styrk þeirra, og mér er til efs
að það sé það sem þjóðin vill.
Viljum við ekki áfram geta verið
stolt af íþróttamönnum okkar og
viljum við ekki að þeim gangi vel
í keppni við útlendinga? — Þá
verður einnig að hafa það í huga
að íþróttafélögin standa fyrir
óhemju umfangsmikilli æsku-
lýðsstarfsemi. Með minnkandi
gengi þeirra myndi færra ungt
fólk, unglingar og böm, ganga til
liðs við félögin heldur fara eitt-
hvað annað. Það held ég að væri
óæskileg þróun. Við þurfum held
ég enn að gera nýtt átak í upp-
byggingu íþrótta- og æskulýðs-
mála, og þar munu íþróttafélögin
óhjákvæmilega leika aðalhlut-
verkið“ sagði Pétur að lokum.
- ; A W*- £■£, y, xAí1C£
íþróttablaðið Áskriftarsími 82300
68