Íþróttablaðið - 01.08.1983, Blaðsíða 12
A heimavelli
Kristín Gísladóttir fimleikakonan snjalla úrGerplu.
HARÐSNÚINN HÓP-
UR FIMLEIKAFÓLKS
Það fer fremur lítið fyrir
frásögnum af afrekum íslensks
fimleikafólks á síðum inn-
lendra dagblaða, og er það
miður því fimleikar eru falleg
íþrótt sem verðskuldar meiri
athygli og umfjöllun. Að vísu
eru iðkendur íþróttarinnar
ekki ýkja margir hér á Iandi, að
minnsta kosti ekki sé borið
saman við boltaíþróttirnar
vinsælu, handknattleik og
knattspyrnu, eða almennings-
íþróttirnar sund og skíði, en
hópurinn er áhugasamur og
stendur sig vel. Nýlega fór
fram í Laugardalshöllinni
landskeppni við Skota, og var
ánægjulegt að sjá framfarirnar
frá síðustu keppni þjóðanna í
millum. Einkum höfðu stúlk-
urnar sótt í sig veðrið og varð
nú mjótt á mununum, þótt þær
skosku hafi borið sigur úr být-
um.
Af islenskum keppendum
eru íslandsmeistararnir mest
áberandi, þau Kristín Gísla-
dóttir, 16 ára, en hún hefur
verið í sérflokki að undan-
förnu, og Jónas Tryggvason,
sem nemur við háskólann í
Moskvu. Það er og ánægjulegt
að Berglind Pétursdóttir fyrr-
um fimleikadrottning hefur
hafið keppni að nýju eftir
nokkurt hlé.
I kringum íþróttafólkið
starfar lítill en harðsnúinn
hópur þjálfara, aðstoðar-
manna og forystumanna í
Fimleikasambandinu undir
stjórn formannsins, hinnar
dugmiklu Lovísu Einarsdóttur.
Meðal þjálfara eru einn Kín-
verji hvers nafn er ógerlegt að
muna, svo og landflótta Pól-
verji, Waldemar Czizmowski,
sérlega geðþekkur maður og
áhugasamur um vöxt og við-
gang íþróttarinnar hér á landi.
Allt þetta fólk starfar af elju
og áhuga, og er sérstaklega
ánægjulegt að sjá og finna
þann góða anda og samhug
sem virðist ríkja innan fim-
leikahópsins.
ALLTI
FULLUM
GANGI
LJndirbúningur fyrir lands-
mót UMFÍ sem haldið verður í
Keflavík sumarið 1984 er nú
kominn í fullan gang. Hefur
landsmótsnefnd ráðið fram-
kvæmdastjóra mótsins og er sá
Sigurbjöm Gunnarsson, en
Sigurbjöm hefur starfað mikið
að íþróttamálum í Keflavík og
var t.d. um tíma framkvæmda-
stjóri UMFK. í mörg hom
verður að líta fyrir landsmótið,
þar sem búist er við að meira
fjölmenni sæki það en nokkru
sinni fyrr.
Breytingar hjá
Stjörnunni
Stjaman í Garðabæ hefur
endurráðið Gunnar Einarsson
sem þjálfara 1. deildar liðs síns
í handknattleik, en Gunnar
hefur verið með liðið undan-
farin 3 ár og náð geysilega at-
hyglisverðum árangri með það.
Gunnar ætlaði sér að hætta
með liðið, en þegar á herti
lögðu leikmenn mikla áherslu
á að hafa hann áfram. Stjarn-
an hefur nú fengið góðan liðs-
styrk þar sem Bjarni Bessason,
fyrrverandi ÍR-ingur mun leika
með liðinu næsta vetur, en
Bjami er tvímælalaust í hópi
bestu handknattleiksmanna
Iandsins. Tveir leikmanna
Stjömuliðsins frá í fyrra,
Guðmundur Óskarsson og
Eggert ísdal gengu hins vegar í
FH og mun ástæðan fyrir því
hafa verið sú að þeir töldu að
þeir hefðu ekki fengið nógu
mörg tækifæri með liðinu und-
ir stjóm Gunnars Einarssonar.
12