Íþróttablaðið - 01.08.1983, Side 54
ÓTRÚLEGUR
ÁRANGUR
Sund er ein þeirra íþrótta-
greina sem teljast almennings-
íþróttir. Fjöldinn allur notar
sundið til að halda sér í líkam-
legu formi eins og það heitir á
máli íþróttafólks, og víst býður
sund upp á holla og nauðsyn-
lega hreyfingu sem hentar öll-
um. En sund er einnig keppnis-
íþróttagrein og mjög erfið sem
slík, eins og sjá má á því að
afreksfólk í sundi æfir að jafnaði
mun meira en aðrir íþrótta-
menn. Það er alltaf talað um að
aðstæður þær sem íþróttafólki
sé boðið upp á til æfinga og
keppni skipti sköpum fyrir
árangur þess og það er örugg-
lega rétt í flestum tilfellum. En
svo koma undantekningarnar
sem sanna regluna, íþrótta-
menn sem komast í fremstu röð
eftir að hafa æft við verulega
frumstæðar aðstæður, sem vart
þykja þoðlegar. Dæmi um slíkt
höfum við í ýmsum íþrótta-
greinum og sem lýsandi dæmi
má nefna undraverðan árangur
sundmanna frá knattspyrnu-
bænum Akranesi. Þaðan hafa
komið margir toppmenn í
íþróttinni og það er mörgum
hreinasta ráðgáta, því sundfólk
á Akranesi æfir í potti sem varla
er hægt að telja til sundlauga,
aðeins 12‘/2 m á lengd, eða lU af
lengd Laugardalslaugarinnar.
Helgi Hannesson: Faðir
sundsins á Akranesi.
Þegar Skagamenn eru inntir
eftir því hvernig á því standi að
í litlu lauginni á Skaganum hafi
komið fram jafn góðir sund-
menn og raun ber vitni, nefna
þeir alltaf Helga Hannesson
sem aðalástæðuna. Hann hafi
sem sundkennari og lengi þjálf-
ari sundfélagsins lagt grunninn
að góðum árangri sundkrakk-
anna og verið allt í öllu í sund-
málum þeirra á Skipaskagan-
um. Helgi Hannesson er utan
Akraness ef til vill betur þekkt-
ur sem leikmaður með knatt-
spyrnuliði Skagamanna, því
Þetta ernú ölldýrðln. Bjarnarlaug á Akranesi. En laugin hefur verið ,,vagga“ sumra bestu sundmanna Islands.
54