Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 7
ÞORGRÍMUR
ÞRÁINSSON
Ritstjóraspjall
Þá er sumarið liðið og íþróttalíf á íslandi tekur stakkaskiptum. Knattspyrnumenn leggja senn
skóna á hilluna — í bili að minnsta kosti og aðrar íþróttagreinar ráða ríkjum. Þó eru eftir
nokkrir stórleikir á knattspyrnuvellinum og nægir þar að nefna viðureign Vals við eitt sterkasta
félagslið heims, Juventus með hverja stórstjörnuna á fætur annarri innan sinna raða. Landsliðið
hefur leikið fyrsta leikinn í Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu og lofar byrjunin góðu. Jafn-
tefli við sjálfa Evrópumeistara Frakka sýnir að ekkert landslið í heiminum getur lengur verið
öruggt um sigur gegn „litla“ íslandi.
Aldrei verða menn á eitt sáttir um val á landsliði og verður seint hægt að þóknast öllum.
Óneitanlega sakna flestir Guðmundar Torfasonar úr hópnum en hann var fyrir skemmstu valinn
besti leikmaður 1. deildar af mótherjum hans. Frammistaða „íslensku" leikmannanna í viður-
eigninni gegn Frökkum sýnir að við getum staðið okkur frábærlega þegar á reynir og sannar að
enn fleiri leikmenn úr 1. deild á íslandi eiga heima í liðinu.
Knattspyrnufélagið Fram hampaði íslandsmeistaratitlum eftir harða baráttu við Val og má
með sanni segja að úrslitin hafi ráðist á síðustu mínútu íslandsmótsins. Þar með er 14 ára bið
Fram eftir titlinum á enda og óskar íþróttablaðið félaginu innilega til hamingju með árangurinn.
Miklar sviptingar hafa átt sér stað í körfuboltanum fyrir komandi keppnistímabil og hafa öll
lið Úrvalsdeildar fengið til liðs við sig nýja þjálfara. Flest lið ætla sér stóra hluti í vetur og verður
fróðlegt að fylgjast með hinni nýju kynslóð leikmanna sem er að koma upp í körfuboltanum.
Sömu sögu er að segja úr handboltanum því mjög margir efnilegir spilarar eru að skjóta upp
kollinum.
Eðvarð Þ. Eðvarðsson vann enn eitt afrekið fyrir skemmstu er hann setti Norðurlandamet í
baksundi á heimsmeistaramótinu á Spáni. Eðvarð er þar með kominn í hóp fremstu sundmanna
heims og væntum við mikils af honum í framtíðinni — sem og endranær.
Við sjáum fram á góðan vetur hvað íþróttir varðar því sjaldan eða aldrei hefur íþróttalíf á
íslandi verið í eins miklum blóma. Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi og vænti ég þess að allir
stefni á toppinn.
Ritstjóri:
Þorgrímur Þráinsson
Auglýsingastjóri:
Hafsteinn Viðar Jensson
Skrifstofa ritstjórnar:
Ármúla 38
Útgefandi: Frjálst framtak hf.
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18
Símar 82300 - 685380
Áskriftargjald kr. 595,09 (hálft ár)
Hvert eintak í áskrift kr. 198,30
Hvert eintak í lausas. kr. 239,00
Setning, umbrot, filmuvinna
prentun og bókband:
Prentstofa G. Benediktssonar
Litgreining kápu:
Prentmyndastofan.
Málgagn {þróttasambands íslands
HÉRAÐSSAMBÖNDINNAN ÍSf:
HÉRAÐSSAMBAND SNÆFELLSNES- OG
HNAPPADALSSÝSLU
HÉRAÐSSAMBAND STRANDAMANNA
HÉRAÐSSAMBAND SUÐUR-ÞINGEYINGA
HÉRAÐSSAMBAND VESTUR-ÍSFIRÐINGA
HÉRAÐSSAMBAND BOLUNGARVÍKUR
HÉRAÐSSAMBANDIÐ SKARPHÉÐINN
IÞRÓTT ABANDALAG AKRANESS
ÍÞRÓTT ABANDALAG AKUREYRAR
ÍÞRÓTTABANDALAG HAFNARFJARÐAR
ÍÞRÓTT ABANDALAG ÍSAFJARÐAR
f ÞRÓTT ABANDALAG KEFLAVÍKUR
fÞRÓTT ABANDALAG ÓLAFSFJARÐAR
i'þróttabandalag reykjavíkur
i'þróttabandalag siglufjarðar
íþróttabandalag suðurnesja
íþróttabandalag vestmannaeyja
UNGMENNA- OG ÍÞRÓTT ASAMBAND
AUSTURLANDS
UNGMENNASAMBAND a-húnvetninga
UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND DALAMANNA
UNGMENNASAMBAND EYJAFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND
KJALARNESSÞINGS
UNGMENNASAMBANÐ SKAGAFJARÐAR
UNGMENNASAMBAND V-HÚNVETNINGA
UNGMENNASAMBAND
V-SKAFTFELLINGA
UNGMENNASAMBANDIÐ ÚLFLJÓTUR
UNGMENNASAMBAND N-ÞINGEYINGA
SÉRSAMBÖNDINNAN ÍSf:
BADMINTONSAMBAND fSLANDS
BLAKSAMBANDISLANDS
BORÐTENNISSAMBAND fSLANDS
FIMLEIKASAMBANDISLANDS
FRJÁLSlÞRÓTT ASAMBAND ÍSLANDS
GLfMUSAMBAND ÍSLANDS
GOLFSAMBANDISLANDS
HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS
ÍÞRÓTT ASAMBAND FATLAÐRA
JÚDÓSAMBAND ÍSLANDS
KARATESAMBAND fSLANDS
KNATTSPYRNUSAMBAND ISLANDS
KÖRFUKNATTLEIKSSAMBANDISLANDS
LYFTINGASAMBAND ÍSLANDS
SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS
SKIÐASAMBAND ÍSLANDS
SKOTSAMBAND ISLANDS
SUNDSAMBAND fSLANDS
7