Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 11
Juventus
æfingum hjá Juventus því leikmenn
gerðu í því að koma Platini á kaldan
klaka þegar þeir hituðu upp í reitar-
bolta. Þrír leikmenn voru þá í miðj-
unni, 15 fyrir utan sem máttu einungis
nota eina snertingu. Flestar sendingar
sem Platini fékk voru ýmist með snún-
ingum eða mjög krefjandi. Ef hann
náði ekki að koma boltanum frá sér
sem hann oftast gerði var mikið blístr-
að og öskrað. Allt var þó í gamni gert
og Platini virtist sjálfur hafa gaman af
því að vera skotspónn.
Það sem kom mér einna mest á
óvart hversu langur tími fór í upphit-
unar- og líkamsæfingar miðað við það
sem við eigum að venjast á íslandi. Og
samt var yfir 20 stiga hiti úti. Fjðl-
breytnin í líkamsæfingunum var gífur-
leg og mátti margt af þeim læra. Bolta-
tækni manna kom mér í sjálfu sér ekki
á óvart þegar ég sá hversu mikið er
lagt upp úr reitarbolta. Sex gegn þrem-
ur á litlu svæði var mjög algeng æfing
— ýmist með einni, tveimur eða frjáls-
um snertingum. Þannig var spilað í allt
að 40 mínútur. Sá sem var áberandi
bestur í reitarboltanum var danski
snillingurinn Michael Laudrup. Hann
'S fer mikill tími í þær þrátt fyrir hitann. Michael
Cabrini — landsliðsmaðurinn sterki
sem Platini telur sterkasta varnar-
mann heims.
sýndi ótrúlega leikni með boltann og
lék félaga sína oft grátt. Ef einhver
setti í gegnum klofið á öðrum var allt
vitlaust og mikið hlegið. Léttleikinn
var fyrirrúmi og tók ítalski þjálfarinn
Marchesi þátt í öllum æfingunum.
Áður en að skotæfingunni kom hélt
ég að ég hefði séð allt — en þvílíkur
misskilningur. Hending var ef leik-
menn hittu ekki rammann og flest
skotin rötuðu alla leið í netið þrátt fyr-
ir hæfni markvarðarins Tacconi. Það
var ekki verið að þruma af lífs og sálar
kröftum heldur var skottæknin mjög
íjölbreytt.
KNATTSPYRNU-
MAÐUR EVRÓPU 3 ÁR
ÍRÖÐ
Um hæfileika Michel Platini sem
knattspyrnumanns þarf ekki að fjöl-
yrða því hvert einasta barn sem hefur
áhuga á knattspyrnu veit hvað hann
getur. Michel Platini er fæddur 21. júní
1955 í Joeuf í Frakklandi og lék í sínu
heimalandi til ársins 1982 er hann var
keyptur til Juventus. Enginn annar
leikmaður í heiminum hefur verið eins
mikið í sviðsljósinu undanfarin ár
nema ef vera skyldi Maradona en
stjarna hans skín skært um þessar
mundir.
Platini hefur verið kjörinn knatt-
spyrnumaður Evrópu þrjú síðustu ár
en engum öðrum knattspyrnumanni
hefur tekist það. Platini er markahæsti
leikmaður Frakklands frá upphafi, var
fyrirliði landsliðsins er það varð
Evrópumeistari 1984 og jafnframt
markakóngur keppninnar. Ófáa ann-
arra titla hefur hann unnið til með lið-
um sínum í Frakklandi og með Juven-
tus á Ítalíu. Við skulum líta á knatt-
spyrnuferil Platini áður en lengra er
haldið:
1972- 73 Nancy l.deild 5 leikir 2 mörk
1973- 74 Nancy l.deild 8 leikir 2 mörk
1974- 75 Nancy 2.deild 32 leikir 17
mörk
1975- 76 Nancy l.deild 38 leikir 22
mörk
1976- 77 Nancy l.deild 38 leikir 25
mörk
1977- 78 Nancy l.deild 36 leikir 18
mörk
1978- 79 Nancy l.deild 18 leikir 12
mörk
1979- 80 Saint-Etienne l.deild 36 leikir
16 mörk
1980- 81 Saint-Etienne l.deild 35 leikir
20 mörk
1981- 82 Saint-Etienne l.deild 36 leikir
22 mörk
1982- 83 Juventus l.deild 30 leikir 16
mörk
1983- 84 Juventus l.deild 28 leikir 20
mörk
1984- 85 Juventus l.deild 30 leikir 18
mörk
1985- 86 Juventus l.deild ? ?
PLATINIEREINS OG
FRANSKT RAUÐVÍN
Þrátt fyrir að hafa ekki leikið af
neinni snilld í Mexíkó hefur Platini
engu gleymt. „Hann er eins og franskt
rauðvín,“ sagði Ian Ross þjálfari Vals.
„Verður betri með aldrinum." Undirrit-
aður sá leik með Juventus í bikar-
keppninni gegn liði úr 3.deild en þrátt
fyrir litla mótspyrnu lék Platini eins og
engill sem og hinir leikmenn Juventus.
Jú, maður hefur séð Platini leika í sjón-
varpinu og gera það af mestu snilld. En
„seeing is believing" — þvílíkur leik-
maður og sendingar. Á stundum skildi
11