Íþróttablaðið - 01.10.1986, Page 12
Juventus
maður ekki hlaup hjá einstaka leik- klassa en Valur þá hafa allir vonandi saga endurtók sig í fyrra er Valur lagði
mönnum þegar Platini var með bolt- heyrt söguna um Davíð og Golíat. Sú Nantes að velli — því ekki aftur í ár???
ann en svo kom sendingin. Ekki aðeins
rataði hún rétta leið heldur lenti bolt-
inn nákvæmlega eins og best verður á
kosið. Það virtist ekki skipta máli hvort
Platini snéri baki í mark andstæðing-
anna — því stundum gaf hann blint og
tóku áhorfendur andköf þegar send-
ingin lenti á réttum stað.“
En Platini gæti þetta ekki nema að
hafa frábæra leikmenn í kringum sig.
Vörnin er skipuð reyndum landsliðs-
mönnum og þeirra á meðal er Caprini
sem Platini segir vera besta varnar-
mann heims. Fyrirliðinn Scirea er frá-
bær svo og hinn tignarlegi Brio. Á
miðjunni er Bonini sem vinnur að
manni finnst á við 4 menn. Hann
stoppar aldrei og er út um allt. Lau-
drup er hin nýja stjarna Juventus og
kom það best í ljós þegar leikmenn
voru kynntir því hann fékk mesta svör-
un frá áhorfendum. Hraðabreytingar
hans, tækni og boltameðferð eru með
ólíkindum. Án nokkurs vafa verður
hann kóngurinn í Evrópu innan fárra
ára. Serena framlínumaður er einnig
landsliðsmaður og besti skallamaður
liðsins — stórhættulegur leikmaður.
JUVENTUS Á ÍSLANDI
Það sem vakti sértaka athygli mína
var hversu ört leikmenn skipta um
stöður og virðist sem þeir geti Ieikið
hvar sem er. Gífurleg hreyfing er á leik-
mönnum og er það boltinn sem látinn
er vinna allan tímann. Horfandi á lið
eins og Juventus gerir maður sér betur
grein íyrir hversu gífurlegur munur
getur verið á atvinnumennsku og
áhugamennsku. Atvinnumennirnir eru
þrautþjálfaðir, geta æft hvenær sem
þeim hentar og hvílt sig eftir þörfum.
Valsmenn eiga erfiða leiki fyrir
höndum en jafnframt skemmtilega og
víst er að þeir munu minnast þessara
leikja svo lengi sem þeir lifa. Það að fá
að etja kappi við þá bestu í heimi er
tækifæri sem gefst ef til vili ekki nema
einu sinni á lífsleiðinni. Koma Juven-
tus til íslands er án efa mesti knatt-
spyrnuviðburður síðan Benfica með
Eusebio í broddi fylkingar lék hér á
landi 1966 — viðburður sem enginn
áhugamaður má láta fram hjá sér fara.
Þrátt fyrir að Juventus sé í allt öðrum
X
Bliil
\
Gyífi Kristinsson
■
Þeir komast lengst með Dunlop.
Útvegum golfkúlur meö nafni þínu
eöa fyrirtækis þíns, DDH500 eða 65 I.
Hámark 21 stafur.
Lágmarkspöntun 3dúsín og gréiöist við pöntun.
Verð per dúsín 1.829 kr.
Þær pantanir sem eiga að afgreiðast fyrir
jól þurfa að berast okkur fyrir 27. okt.
A* Aisturbakki hf.
Borgartúni 20, sími 28411.
12