Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 17

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 17
Svifdrekaflug altnen et \>aYa 5ko»a set' ni\egatVírt- tókstog1?a FAFRÆÐI Er dýrt að stunda svifdrekaflug? „Þarna kom spurningin sem við bið- um eftir. Fólk veit ótrúlega lítið um svifdrekaflug og elur með sér fjöldann allan af ranghugmyndum. Ein þeirra er að svifdrekaflug sé óheyrilega dýrt sport og ekki á færi annarra en fokríkra manna að stunda það. En þetta er náttúrulega hin mesta vitleysa, við erum allir óbreyttir almúgamenn. Eini beini kostnaðurinn við iþrótt- ina liggur í drekanum. Byrjandi getur vel komist af með dreka fyrir 30.000 krónur og þá er hjálmur og flugvesti talið með. Það er engin ástæða fyrir byrjendur að festa kaup á dýrum og fullkomnum tækjabúnaði. Reynslan hefur sýnt að 60 - 70% þeirra sem byrja á drekaflugi hætta því innan árs. Það er því best að byrja smátt og þreifa sig síðan áfram ef íþróttin höfðar til manns á annað borð. Þeir sem lengra eru komnir eru með útbúnað sem kostar allt að 150 - 160 þúsund. Þá erum við að tala um góðan dreka, flugvesti, fallhlíf, hjálm og full- komna mæla, hraðamæli, hæðamæli og rismæli. Mælarnir eru nauðsynlegir, því líkaminn greinir ekki svo gjörla hvað ris drekans er mikið. Einnig er erfitt að átta sig á hraðanum miðað við jörðu og hæð. Mælarnir sem við notum eru fyrirferðarlitlir en ákaflega ná- kvæmir. Flugmenn sem prófað hafa mælana okkar hafa lýst undrun sinni á nákvæmni þeirra. Við klæðum okkur líka alltaf vel fyrir hvert flug, því hver veit nema við verð- um heppnir og lendum í góðu upp- streymi og komumst upp í háar hæðir og þar getur verið kalt. En ef það tekst ekki þá kúldrumst við kappklæddir niðri við jörð og þar getur maður svitnað heil ósköp. En í góðum skilyrð- um og í kyrru lofti er flugið nánast eins auðvelt og liggja í leti upp í rúmi.“ Hvað er það sem lokkar menn út í drekaflugið? „Við þessari spurningu er ekki til einhlítt svar. Drekaflugið er fjölbreytt íþrótt þar sem allt er undir flugmann- inum sjálfum komið. í fluginu kynnist maður einnig nýjum hliðum á sjálfum sér. í erfiðum flugum þarf maður að vinna úr hræðslunni vitandi að enginn getur komið til hjálpar. Drekafluginu fylgir alltaf spenna, hversu góð sem flugskilyrðin eru. Spennan heldur flugmanninum vak- andi og hann verður varkár. Ef hjartað hættir að slá hraðar rétt fyrir flugtak verða menn kærulausir og það má síst í þessu sporti." Þið eruð allir landsliðsmenn í dreka- flugi og hafið keppt erlendis, hvernig eru íslenskir flugmenn samanborið við erlenda? „íslenskir flugmenn er almennt tald- ir nokkuð góðir og þökkum við erfið- um flugskilyrðum það. Hitaupp- streymin hér á landi eru mun minni og strjálli en gengur og gerist á góðum flugsvæðum erlendis. Við höfum því töluverða reynslu í flugi við erfið skil- 17

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.