Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 32
Úlfar Jónsson
„Það kostar auðvitað sitt að gera
ekkert annað en að bara æfa og keppa í
mótum. Þetta hefði náttúrlega ekki ver-
ið hægt ef foreldrar mínir styddu mig
ekki í þessu en þau eru bæði mjög
áhugasöm og hvetja mig áfram. Ég fékk
ákveðinn styrk frá velunnurum fyrir
sumarið og svo hefur klúbburinn einnig
haldið tvö styrktarmót fyrir mig sem
kom sér mjög vel. Austurbakki hf. hefur
styrkt mig með boltum og áhöldum en
ekkert eitt fyrirtæki eða stofnun „sér
um mig“ ef svo má segja, eins og tíðkast
víða erlendis og gerðist í raun hjá Sig-
urði Péturs í fyrra þegar Olís styrkti
hann til keppni.
Til gamans má geta þess að Úlfar
þakkaði heldur betur fyrir sig í seinna
styrktarmótinu því þá setti hann nýtt
vallarmet á Hvaleyrinni, lék á 65 högg-
um, fjórum undir pari vallarins.
— Hvað með næsta sumar? Verð-
urðu áfram „atvinnumaður"?
„Ég vona svo sannarlega að svo verði
og ég er reyndar vongóður um að það
takist. Ég get ekki hætt núna, gamanið
er rétt að byrja. Alvaran kemur seinna."
Landsliðið í framför
Þótt Úlfar sé ungur að árum er hann
kominn með á annan tug landsleikja,
bæði með karlaliðinu og unglingalands-
liðinu. Ég spurði hann um stöðu golfs-
ins á íslandi í dag?
„Landsliðið okkar er í framför. Svo
virðist reyndar einnig vera með önnur
nágrannalönd okkar. En í golfinu eins
og feiri íþróttagreinum hér á landi eig-
um við undir högg að sækja gagnvart
öðrum þjóðum. Þar kemur fyrst og
fremst aðstöðumunurinn í ljós. Það er
til dæmis erfitt að stunda golf á íslandi,
aðeins hægt að leika u.þ.b. hálft ár á
meðan flestar aðrar þjóðir geta verið
minnst 9—10 mánuði og svo í betra
veðri. Ennþá vantar meiri breidd „á
toppinn“ héma. Ef við lítum til dæmis á
skipan landsliðsins sl. 5—6 ár þá er viss
3—4 manna kjami sem hefur verið í lið-
inu allan þennan tíma, og er enn. Hjá
Svíum, þó svo við getum ekki borið
okkur saman við þá svo raunsætt sé, er
aldrei neinn öruggur í landslið. Enda
eiga þeir aragrúa golfara á alþjóðlegum
mælikvarða og nokkra sem eru famir að
blanda sér í toppbaráttuna í heimi at-
vinnumanna."
Margir efnilegir
— En eru ekki margir ungir golfarar
á íslandi að koma upp núna sem eiga
eftir að fylla þessa breidd sem þú talar
um að vanti?
„Þó svo ég hafi sagt að það vanti
meiri breidd þá hefur hún aukist jafnt
og þétt undanfarin ár þó ég geti ekki
talað langt aftur í tímann. Það er fullt af
ungum og efnilegum golfurum og sem
stendur er slík kynslóð að koma upp
bæði hjá Keilismönnum og GR.“
Raggi erfiðastur
— Talandi um íslenska golfara Úlfar,
hver finnst þér erfiðasti mótherji sem
þú hefur átt við?
íslandsmeistarinn hugsar sig um dá-
litla stund en segir svo: „Ragnar held
ég, ... jú Raggi er erfiðastur. Hann er
rosalegur baráttujaxl og gefst aldrei
upp. Siggi Pé er líka mjög erfiður mót-
herji og hefur verið í fremstu röð í mörg
ár þó svo hann sé langt frá því að vera
kominn í flokk með mörgum „gömlum“
og góðum, hann á mikið eftir.“
Ballesteros í uppáhaldi
— Ein svona sígild spuming. Hver er
þinn uppáhalds erlendi golfari?
„Severiano Ballesteros, hann er frá-
bær golfleikari. Ég sá hann í fyrsta skipti
með „berum augurn" í keppni í sumar
þegar við fórum saman ég og Bjöm
Axelsson, Akureyrarmeistari, eftir
keppni á alþjóðlegu unglingamóti í
Belgíu. Við fórum og sáum einn keppn-
isdag í German-open. Þama voru menn
eins og Bernand Langer, Þjóðverjinn og
Bretinn Sandy Lyle ásamt Ballesteros
og svo margir fleiri frægir. Það var und-
arleg tilfmning að sjá Ballesteros í leik
aðeins í nokkurra metra fjarlægð. Þegar
við komum inn á svæðið gekk ég að
púttgríninu og fylgdist með köppunum
æfa. Þá hnippti Bjössi í mig og sagði:
Úlli sérðu þennan"? Ég sneri mér við,
var þá ekki sjálfur Ballesteros að æfa
púttin. Við vorum nýkomnir inn á svæð-
ið og ég hreinlega kiknaði í hnjáliðun-
um. Sjálfur draumagolfarinn rétt hjá
mér.“ Úlfar hlær þegar hann hugsar til
atviksins sem honum þótti svo mikið
um og segir svo: „Hugsaðu þér ef mað-
ur fengi að spila á móti honum einhvern
tíma. Hann á eftir að vera lengi í þessu
ennþá, hver veit nema maður fái tæki-
færi,“ segir Úlli og brosir.
Skoða úrvalið
Þegar hér var komið við sögu lukum
við spjallinu sem fram fór á veitingastað
í Hafnarfirði og ég ók íslandsmeistaran-
um til síns heima, að Breiðvangi 10. Rétt
áður en kappinn steig út úr bílnum
sagði ég honum að ein spuming hafi
gleymst. „Hvað er það?“ sagði Úlfar. —
„Hefur íslandsmeistarinn einhvem tíma
til að hugsa um kvenfólk?" „Oh, ég hélt
og var að vona að þú hefðir gleymt
þessari" sagði hann og leit upp í loftið
þegar hann tók í húninn. „Ég er ekki á
föstu, en maður skoðar auðvitað úrval-
ið“...
Bíkleiga Flugleiða leysir tímabundna þörf þína
bíl, hvort heldur er í viðskipta- eða skemmtiferð.
Fjölbreytt úrval nýrra og nýlegra bíla við allra hæfi.
Sími (91) 690 200
32