Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 38
Michael Laudrup
tel ísafjörðu
511 nútímaþœgindi #
í hrikalegu umhverfi skutulsfjarðar
Hvort heldur þig langar
á skíði á Seljalandsdal,
einu fegursta skíóa
svæði landsins eða „
aðeins að njóta lífsins í ' * ^
þægilegu umhverfi í ^ 1
faðmi vestfirskra fjalla,
er nýja hótelið á Eyri við
Skutulsfjörð rétti staðurinn.
Við bjóðum 30 þægileg herbergi m/baði,
allar veitingar og ráðstefnu
aðstöðu fyrir smærri hópa.
hótel ísaíjözóur silfurtorgi 2, simi 94-4111
/v
éH
I%
bí'V.v?
m
Mi
c&n
n
1
I
8
P|
||
stórtap gegn Spáni 1-5. „Ég er mjög
ánægður með frammistöðu danska
iandsliðsins framan af en síðan kemur
tapleikurinn gegn Spáni. Þrátt fyrir
það tap held ég að við höfum sannað
getu okkar sem landslið og haft góð
áhrif á knattspyrnuna í heiminum. Mér
finnst alveg grátlegt að falla úr keppni í
fyrsta tapleiknum og er ég ekki sáttur
við fyrirkomulagið á keppninni. Sjáðu
Belgíu — þeir verða í 3.sæti í sínum
riðli en komast alla leið í undanúrslit.
Mér finnst þetta ekki sanngjarnt. Von-
andi verður gamla fyrirkomulagið tek-
ið upp að nýju.
— Voru vonbrigðin ekki mikil eftir
tapleikinn gegn Spáni?
„Vitanlega voru menn sárir en svona
er fótboltinn. Við færum þeim mark á
silfurfati og síðan leikum við illa í
seinni hálfleik. Ef til vill voru það mis-
tök á leika með 3 framlínumenn en
alltaf er hægt að vera vitur eftir á.
Arnesen var í leikbanni og í hans stað
kom Erikson. Dæmið gekk einfaldlega
ekki upp og skiptast svo sannarlega á
skin og skúrir í knattspyrnunni. Takt-
íkin sem danska landsliðið spilaði var
mjög frjáls. Við höfum mjög hæfileika-
ríkum leikmönnum á að skipa sem geta
leikið nánast hvar sem er á vellinum.
Þetta býður upp á mikla möguleika og
njóta menn sín betur.“
— Af hverju var Mölby ekki not-
aður?
„Ég veit það ekki — engin staða var
laus fyrir hann í liðinu fyrst Lerby var
með. Þeir eru mjög svipaðir spilarar og
annar varð að víkja. En Mölby er mjög
góður leikmaður."
— Hvernig var andinn í liðinu, eru
þið allirgóðir vinir?
„Mórallinn í liðinu var mjög góður.
Leikmenn eru ekki neinir sannir vinir;
en vitaskuld erum við góðir félagar.
Milli leikja spiluðum við á spil eða
gerðum eitthvað til þess að dreifa hug-
anum.“
— Það vakti athygli að eiginkonur
ykkar fengu að fara til Mexíkó and-
stætt því sem leyfðist hjá flestum
öðrum landsliðum.
„Konurnar okkar dvöldu í Mexíkó í
10 daga töluvert frá okkar hóteli og
fengum við aðeins að hitta þær þrisvar
sinnum. Þær höfðu ekki nein áhrif á
spilamennsku okkar nema ef vera
skyldi til hins betra.“
ATVINNUMENN
VANMETA EKKI
ANDSTÆÐINGANA
Michael Laudrup hefur aðeins einu
sinni leikið á íslandi en það var árið
1982 er landslið þjóðanna skipuð leik-
mönnum 21 árs og yngri skildu jöfn
1-1. Fyrsta A-landsleikinn lék Laudrup
á 18 ára afmælisdeginum gegn Norð-
mönnum og skoraði mark. Síðan hefur
hann klæðst landsliðstreyjunni 33
sinnum og skorað 19 mörk — frábær
árangur hjá 22 ára gömlum leikmanni.
Á síðasta keppnistímabili lék hann 29
leiki með Juventus og skoraði 7 mörk.
En hvað ætli Laudrup viti um íslenska
knattspymu og knattspyrnumenn?
„Satt best að segja hef ég ekki hugs-
að um íslenska knattspymu síðan ég
lék á íslandi. Ég kannast aðeins við tvo
af ykkar leikmönnum en það eru Arnór
Guðjohnsen og Ásgeir Sigurvinsson.
Þeir eru víst báðir mjög góðir.“
— Hafa leikmenn Juventus eitt-
hvað rætt um mótherja ykkar Val í
Evrópukeppninni. Komið þið til með
að vanmeta áhugamennina frá íslandi?
„Leikmenn hafa ekki rætt neitt sér-
taklega um þann leik nema hvað að
gaman verður að fara til íslands. And-
stæðingar okkar verða ekki vanmetnir
frekar en önnur lið sem við leikum
gegn hvar sem er í heiminum. í at-
vinnumennsku er ekkert til sem heitir
vanmat því við berum virðingu fyrir
öllum andstæðingum hvort sem um er
að ræða atvinnumenn eða áhugamenn.
Úrslit leikja í hvers kyns mótum hafa
sýnt að lið frá lítt þekktum löndum
geta gert risunum skráveifu hvenær og
hvar sem er“, sagði Laudrup að lokum.
Að spjalli loknu gengum við út fyrir og
beið þar hópur aðdáenda Juventus.
Frægðinni fylgir fjöldi og því fá leik-
menn Juventus að kynnast líkt og at-
vinnumenn annars staðar í heiminum.
Hvergi er stundlegur friður — hvorki
fyrir eða eftir æfingu. Allir vilja fá eigin-
handaráritun hjá stjörnunum og fylgir
fjöldi fólks leikmönnunum hvert fót-
mál. Þetta er hlutur sem þeir hafa
þurft að venjast en er án efa mest pirr-
andi við það að vera stjarna.
38