Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 47

Íþróttablaðið - 01.10.1986, Side 47
íslandsmótið Þá er henni lokið. Knattspyrnu- vertíðinni. Fjölmennasta og um- fangsmesta íþróttamóti á íslandi. Nú þegar knattspymumennirnir setja fótboltaskóna inn í geymslu og knattspymudómararnir koma flautum sínum fyrir uppi á hillu er við hæfi að horfa um öxl og líta yfir farinn veg. Hvað stendur upp úr i endurminningunni um keppnis- tímabilið sem nýliðið er? Hvernig var íslensk knattspyrna árið 1986 og hverjir settu mestan svip á leik- árið? Við munum reyna að svara þessum spurningum vitandi það að svörin hljóta alltaf að vera einstaklingsbundin og endurspegla skoðanir þess er svar- ar. Loksins — loksins Þar kom að því að knattspyrnufélag- ið Fram náði á toppinn aftur eftir 14 ára fjarveru af tindinum. Framsigur í fyrstu deild er nokkuð sem beðið hefur verið með óþreyju af fjölmörgum að- dáendum félagsins og reiknað með af öðrum knattspyrnuáhugamönnum því liðið hefur eflst og styrkst með hverju árinu. Nú stendur það uppi með ís- landsbikarinn eftirsótta. Enginn skyldi segja að það sé ekki verðskuldað. Lið fá það sem þau eiga skilið og Fram hefur virkilega gert sitt til þess að hreppa sæmdarheitið „Besta knattspyrnulið íslands." Til hamingju Framarar! Einn Framari hefur öðrum fremur ástæðu til að gleðjast en það er „stormsenterinn" og markamaskínan Guðmundur Torfason. Í viðtali við íþróttablaðið í upphafi keppnistíma- bilsins s.l. vor sagðist Guðmundur þrá það heitast að verða íslandsmeistari en hann hafði þá aldrei borið þann titil. Nú er takmarkinu náð og í leiðinni jafnaði Guðmundur markamet Skaga- mannsins Péturs Péturssonar er hann skoraði 19 mörk í 18 leikjum. Glæsileg- ur árangur og áttu þess mörk hans svo og frammistaða hans í heild ekki minnsta þáttinn í að tryggja Fram sig- ur í 1. deild. Stórgóð frammistaða Guð- mundar Torfasonar hefur heldur ekki farið framhjá andstæðingum hans í hinum 1. deildar félögunum. Þeir völdu Guðmund „leikmann ársins“ en það er einn mesti heiður sem innlend- um knattspymumanni getur hlotnast. Leikmennirnir sjálfir vita best hverjir hafa skarað fram úr og eru dómbærast- ir á hver þeirra er bestur. Stundum eru skoðanir skiptar enda erfitt að dæma um getu þegar mælistiku verður ekki við komið en síðan Samtök 1. deildar leikmanna voru stofnuð fyrir tveimur árum hefur valið á leikmanni ársins verið óumdeilanlegt. Bjarni Sigurðs- son landsliðsmarkvörður var valinn 1984, Guðmundur Þorbjörnsson 1985 og nú Guðmundur Torfason. í öllum tilfellum hefur valið verið óvéfengjan- legt. Stiklað á stóru Fyrir utan langþráðan Framsigur og jöfnun á markameti í 1. deild stendur ýmislegt annað upp úr þegar keppnis- tímabilið er grannskoðað. Markamask- ínan Tryggvi Gunnarsson KA hélt uppteknum hætti. Hann skoraði alls 28 mörk í 2. deildar keppninni. Valur lék gegn Juventus í Evrópukeppni meist- araliða. Endurkoma Péturs Pétursson- ar í ÍA-liðið varð Skagamönnum sú vítamínssprauta sem fleytti liðinu upp í 3. sæti 1. deildar og gerði það að bikar- meisturum, sigurvegurum í öðru stærsta knattspyrnumóti landsins. Það var virkilega gaman að sjá Pétur leika að nýju í 1. deildinni en þátttaka hans í leikjum ÍA varð tilefni enn eins kæru- málsins. Það er sem betur fer til lykta leitt en er ekki kominn tími til að leika eitt keppnistímabil án þess að svona leiðindamál komi upp? Allt sem þarf eru skýrar reglur og eðlilegur frágang- ur félagaskipta þar sem eitt gengur yfir alla. í kvennaknattspyrnunni bar hæst nokkra yfirburði Valsstúlknanna yfir stöllur sínar. Valur, undir stjórn Róberts Jónssonar, vann tvöfalt í ár — bæði deild og bikar og skærasta stjarna liðsins, Kristín Arnþórsdóttir var valin leikmaður ársins af nýstofnuðum sam- tökum 1. deildar kvenna. Sú efnileg- asta var kjörin Halldóra Gylfadóttir úr ÍA. íþróttablaðið óskar báðum þessum landsliðskonum til hamingju. Sömuleiðis sendum við hamingju- óskir norður yfir heiðar til nýju 1. deildar liðanna í karlaknattspyrnunni, Völsungi og KA. Þau taka sæti ÍBV og Breiðabliks sem stíga hin þungu skref niður í 2. deild en miðað við frammi- stöðu beggja liðanna í lokaumferðum 1. deildar verður þess ekki lengi að bíða að þau leiki aftur meðal hinna bestu. Það er sérstakt ánægjuefni að fá Völsung frá Húsavík upp í 1. deild, en „Völli“ hefur aldrei leikið þar áður og verður fróðlegt að fýlgjast með hvernig þeim vegnar á næsta ári. Snemma varð ljóst að Skallagrímur úr Borgarnesi myndi ekki ná að halda sæti sínu í 2. deild. Félagið hafði misst marga leikmenn frá fyrra ári og þoldi ekki slíka blóðtöku. UMFN féll einnig í 3. deild. Upp í aðra deild koma Leiftur frá Ólafsfirði og ÍR úr Reykjavík. Úr 3. deild falla Leiknir frá Fáskrúðsfirði, Valur frá Reyðarfirði, Ármann og HV sem reyndar hætti þátttöku í íslands- mótinu. Sæti þeirra taka Afturelding, Sindri, Haukar og HSÞ-b. Þá er komið að því að skoða árangur 1. deildar liðanna út frá þeim væntingum sem til þeirra stóðu s.l. vor og þeim markmiðum sem sett voru þegar ýtt var úr vör. Fram: Allt nema bikarinn! Stórkostlegt tímabil hjá Fram. ís- landsmeistaratitilinn langþráði í höfn eftir 14 ára bið, Reykjavíkurmeistarar og sigurvegarar í Meistarakeppni KSÍ. Það vantaði bara sigur í mjólkurbikar- keppninni en þar komst Fram í úrslit á móti ÍA. Eftir að hafa verið í efsta sæti 1. deildar lengst af gaf Fram eftir um mið- bik mótsins og menn veltu því fýrir sér hvort liðið ætlaði aftur að springa á limminu og sjá íslandsbikarinn renna sér úr greipum yfir í gráðugar hendur Valsmanna. Hefði slíkt gerst aftur væri erfitt að vera Frammari um þessar mundir. Spurningar um „karakter“ fé- lagsins og leikmanna hefðu vafalítið vaknað en nú eru þær óþarfar. Fram náði í þau stig sem þurfti — það síð- asta í þrúgandi taugaspennu gegn KR sem hafði unnið Val auðveldlega 3-0 í næst síðustu umferð. Helsta ástæða þess að Fram varð ís- landsmeistari er sú að félagið hafði bestu leikmennina! Þar er valinn mað- ur í hverju rúmi: Friðrik Friðriksson er einn albesti markvörður landsins og 47

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.