Íþróttablaðið - 01.10.1986, Síða 50
íslandsmót
Sá efnilegasti: Hinn stórefnilegi miðvallarleikmaður Gauti Laxdal lék vel í sumar
°g var vel að vegsemdinni kominn. „Besti ungi leikmaðurinn í 1. deild“, að mati
andstæðinganna. Ekki slæmt á fyrsta ári!
sterkt lið og t.d. Fram, Valur og ÍA svo
allt tal um toppsæti var óraunhæft.
Akureyrarliðið varð að sjá á eftir Ósk-
ari Gunnarssyni einum besta leikmanni
sínum sem lést við upphaf móts og hef-
ur það vafalítið haft slæm áhrif. Þá
meiddist Bjarni Sveinbjörnsson aftur
og missti annað keppnistímabilið úr af
þeim sökum. Sá sem komst einna best
frá sumrinu var Jónas Róbertsson hinn
leikni miðvallarleikmaður sem einnig
getur skilað bakvarðarstöðu með
sóma. Halldór Áskelsson var ekki á
skotskónum en það dylst engum að
þar fer hæfileikamikill leikmaður sem á
framtíðina fyrir sér. Hlynur Birgisson
vakti athygli á sínu fyrsta keppnistíma-
bili í 1. deild.
Víðir: Markmiðinu náð
Það þótti gott hjá Víði að halda sér
uppi í 1. deild í fyrra og ekki er það lak-
ara afrek í ár þegar andstæðingarnir
voru búnir að kynnast grimmd Garðs-
manna og reyna að finna svar við
henni. Aðall Víðis var sem fyrr gengd-
arlaus barátta og voru þeir bræður
Einarssynir framarlega í flokki. Daníel
var mjög sterkur, einkum sem mið-
vörður og Grétar Einarsson sýndi
skemmtilega takta. Fyrirliðinn Guðjón
Guðmundsson er einn af þeim leikönn-
um sem leggja sig alla fram, duglegur
vinnuhestur sem aldrei gefur eftir.
Mark Duffield lék með Víði og stóð vel
fyrir sínu — sterkur leikmaður.
FH: Geta betur en vantar
reynslu
Hafnfirðingamir byrjuðu betur en
áður og léku á köflum ágætlega eink-
um fyrri hluta móts. Seinni hluta móts-
ins var FH sama „jó-jóið“ og oftast
áður, vann Þór, gerði jafntefli við Fram
í Laugardal en tapaði fyrir ÍBV sem var
þá þegar fallið í 2. deild. FH heldur
sætinu í 1. deild en ljóst er að breyt-
inga er þörf ef félaginu á að takast að
komast í hóp hinna bestu. Þjálfari liðs-
ins Ingi Bjöm Albertsson lék stórt
hlutverk í sumar eins og jafnan áður.
Hann skoraði mörg mörk framan af en
lék síðari hluta mótsins meiddur og
brá sér þá í vömina. Þar stóð hann sig
afar vel enda leikmaður með mikla
reynslu sem les leikinn vel og getur
örugglega spilað sem „sweeper" í 1.
deild fram að fimmtugu! Ólafur Jó-
hannesson lék eitt aðalhlutverkið í FH-
liðinu, góður leikmaður sem styrkja
myndi flest lið deildarinnar. Guðmund-
ur Hilmarsson er traustur leikmaður
sem ávallt stendur fyrir sínu og
Kristján Gíslason er vaxandi leikmaður
sem gaman verður að fylgjast með.
UBK: Of góðir fyrir aðra
deild
Blikamir eru á hoppi milli deilda um
þessar mundir. Þeir komu upp eftir
síðasta keppnistímabil eftir eins árs
dvöl í 2. deild og fara strax niður aftur.
Ekki kæmi á óvart þótt deildarhoppið
héldi áfram hjá þeim. A.m.k. er liðið
sem lék síðustu leiki deildarinnar alltof
gott til að vera lengi í annarri deild.
UBK byrjaði vel og sýndi einnig mikla
baráttu og liðseiningu í lokin þegar öll
sund virtust lokuð en hvað gerðist um
miðbikið? Hvar var stemmningin og
baráttugleðin þá? Margir ágætir leik-
menn léku með Breiðabliki í sumar.
Einna mesta athygli vöktu framherjinn
knái Jón Þórir Jónsson og Guðmundur
Guðmundsson, stórskemmtilegur mið-
vallarleikmaður sem getur náð langt.
ÍBV: Sjáanlegar framfarir
Dvöl Eyjamanna í 1. deild varð stutt
að þessu sinni, aðeins eitt tímabil. ÍBV
missti Tómas Pálsson og Hlyn Stefáns-
son fyrir mót og mátti alls ekki við því.
Töluverðar mannabreytingar urðu í
liðinu á meðan á mótinu stóð en flestir
eru sammála um að liðið tók framför-
um í sumar og var alls ekki auðveld
bráð undir lokin. Þannig vann ÍBV tvo
síðustu leiki sína gegn FH og Víði og
hlaut fyrir það 6 stig, helming þess
stigafjölda sem liðið fékk í allt sumar.
Ómar Jóhannsson var í nokkrum sér-
flokki útileikmanna liðsins, einn af
betri leikmönnum 1. deildar og er eftir-
sjá af honum úr deildinni. Þorsteinn
Gunnarsson markvörður er mikið efni
og kæmi ekki á óvart þótt hann kæmist
síðar meir í fremstu röð. Ef Eyjamenn
halda flestum leikamanna sinna kom-
ast þeir örugglega fljótt upp aftur.
50